Kynna nýjar og bættar umbúðir til leiks

Ali kynnir nýtt útlit á umbúðum Ali skinku sem flestir neytendur ættu að kannast við. Að sögn Helenu Gunnars Marteinsdóttur, markaðsstjóra Ali var lögð áherslu á að halda í arfleiðina. „Við hönnunina á nýja útlitinu þótti okkur mikilvægt að halda í arfleiðina og gera henni hátt undir höfði. Við vildum einnig halda takt við núverandi ásýnd vörumerkisins og erum mjög ánægð með útkomuna sem er nútímaleg uppfærsla.“

„Aðdragandinn að uppfærðu útliti er innleiðing á nýjum vélarkosti sem skerpir samkeppnishæfni með aukinni afkastagetu og minni umhverfisáhrifum meðal annars með aukinni nýtingu gæða hráefnis,“ segir Helena en með þessari breytingu er Ali skinku er pakkað í loftskiptar og handhægar umbúðir sem eykur þægindi til muna fyrir neytendur. „Ósk neytenda endurlokanlegar umbúðir fyrir Ali skinku er orðin að veruleika.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert