Þynnkudrykkurinn sem TikTok mælir með

Þessi maður er með timburmenn í heimsókn.
Þessi maður er með timburmenn í heimsókn. mbl.is/Getty Images

Samfélagsmiðillinn TikTok virðist vera með svörin við (flest) öllu - meðal annars hvað sé gott við þynnku. 

Hvað ætli sé það besta sem við getum fengið okkur eftir langt næturbrölt? Er það sveittur hamborgari eða afréttari? Á TikTok er drykkur sem á að þykja sá besti til að losna við timburmennina fyrir fullt og allt. Hér um ræðir að hella 3/4 sódavatni í glas og fylla upp með kókosvatni. Kreista síðan lime út í og drekka. Við hér á matarvefnum ábyrgjumst þó ekki áhrifin og verður hver að dæma fyrir sig. Svarið við þynnku er þó afar einfalt - að drekka í hófi eða sleppa því alfarið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert