Kökubæklingur Nóa-Síríusar er rétt kominn í flestar verslanir enda fer senn að líða að baksturstímabilinu sem við elskum öll. Hvort sem það eru smákökur, eftirréttir eða eitthvað ómótstæðilegt með kaffinu þá er það að finna í kökubæklingnum góða sem klikkar ekki í ár fremur en fyrri ár. Það er engin önnur en Linda Ben sem á heiðurinn af bæklingnum í ár, líkt og í fyrra, og henni bregst ekki bogalistin fremur en fyrri daginn.
Ísterta fyrir hátíðarnar
Ís
- 500 ml rjómi
- 6 eggjarauður
- 170 g púðursykur
- 300 g Síríus-lakkrískurl
Brúnkubotn
- 100 g smjör
- 150 g Síríus-suðusúkkulaði
- 150 g sykur
- 2 egg
- 30 g hveiti
- 20 g Síríus-kakóduft
- ½ tsk. lyftiduft
- ¼ tsk. salt
Skraut
- jarðarber
- ferskt rósmarín
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir- og yfirhita.
- Bræðið smjör og súkkulaði varlega saman í potti. Bætið sykrinum út í.
- Þeytið eggin þar til þau verða létt og ljós.
- Hellið súkkulaðiblöndunni varlega saman við eggin og hrærið rólega á meðan.
- Blandið saman hveiti, kakói, lyftidufti og salti, hrærið saman við súkkulaðiblönduna.
- Smyrjið 22 cm smelluform (gott að setja smjörpappír í hliðar formsins líka) og hellið deiginu í formið. Bakið í 20-25 mín. Leyfið kökunni að kólna alveg að stofuhita.
- Þeytið rjómann vel.
- Þeytið eggjarauðurnar og púðursykurinn mjög vel saman í annarri skál þar til blandan myndar borða.
- Blandið rjómanum varlega saman við eggjablönduna með sleikju.
- Bætið lakkrískurlinu út í ísblönduna og blandið saman með sleikju.
- Hellið deiginu yfir brúnkubotninn, hyljið með plastfilmu og geymið í frysti í a.m.k. 12 klst.
- Skreytið með jarðarberjum og fersku rósmaríni.