Flipp borgarar Berglindar

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Ég veit ekki alveg hvernig ég á að íslenska þetta nafn en ég elska að fylgjast með Natascha’s Kitchen og sá hana eitt sinn útbúa „Slide Burgers“ og hef haft lengi á to-do listanum hjá mér,“ segir Berglind Hreiðars á Gotteri.is um þennan sniðuga rétt sem getur í senn verið kvöldmatur, partýmatur eða stjarnan í barnaafmælinu.

„Það fást ekki svona „Dinner Rolls“ á Íslandi (ekki svo ég viti að minnsta kosti og ég leitaði líka í Costco) svo ég bakaði slíkar bollur. Það væri hins vegar vel hægt að kaupa hamborgarabrauð eða brauðbollurnar í Costco, skera í sundur og raða þétt í fatið ef þið eruð á hraðferð.“

„Slide Burgers“

Hamborgarabrauðbollur

  • 560 g hveiti
  • 1 pk þurrger (11,8 g)
  • 70 g sykur
  • 1 tsk. salt
  • 300 ml volg mjólk
  • 80 g smjör við stofuhita
  • 1 egg
  • 100 g brætt smjör
  • Sesamfræ (má sleppa)

Aðferð:

  1. Setjið rúmlega helminginn af hveitinu og öll önnur hráefni (nema brætt smjör og sesamfræ) í hrærivélarskálina og notið krókinn til þess að blanda saman.
  2. Bætið restinni af hveitinu síðan saman við í nokkrum skömmtum, skafið niður hliðarnar á skálinni á milli og hnoðið síðan í nokkrar mínútur í vélinni.
  3. Penslið skál að innan með matarolíu, flytjið deigkúluna yfir og veltið upp úr olíunni, plastið skálina og látið hefast í 30-60 mínútur.
  4. Smyrjið eldfast mót/skúffukökuform vel að innan með smjöri og skiptið deiginu næst niður í 24 hluta.
  5. Rúllið í litlar bollur og raðið 4 x 6 sinnum í fatið, leyfið að hefast aftur undir klút í 30 mínútur.
  6. Hitið ofninn í 180°C og útbúið fyllingu og kokteilsósu á meðan (sjá uppskriftir að neðan).
  7. Penslið bollurnar eftir hefun með hluta af brædda smjörinu og bakið í 16-20 mínútur eða þar til þær fara að gyllast vel og losna örlítið frá köntunum.
  8. Leyfið þeim aðeins að kólna niður hvolfið úr fatinu og skerið í sundur allar fastar saman. Mér fannst gott að nota kökuskera sem ég á við verkið en góður brauðhnífur og nákvæmni duga vel.
  9. Setjið neðri hlutann aftur í fatið, setjið fyllinguna á milli og þá efri hlutann. Penslið aftur með vel af smjöri, toppið með smá sesamfræjum, setjið álpappír yfir og aftur inn í ofn í 10-15 mínútur eða þar til allur ostur er vel bráðinn. Skerið niður með hverri bollu allan hringinn og njótið.

Fylling og samsetning

  • 800 g ungnautahakk
  • 1 laukur
  • 6 stórar ostsneiðar
  • 150 g rifinn pizzaostur
  • Salt, pipar, hvítlauksduft, chilliduft (annað krydd sem ykkur finnst gott)
  • 3 msk. Hellmann‘s majónes
  • Ólífuolía til steikingar
  • Sesamfræ

Aðferð:

  1. Saxið laukinn smátt og steikið upp úr olíu, kryddið til eftir smekk.
  2. Bætið hakkinu á pönnuna og steikið vel og kryddið.
  3. Bætið majónesinu saman við í lokin þegar búið er að slökkva á hellunni. Ef það er mikil olía í hakkinu ennþá áður en þetta er gert má halla pönnunni og taka umfram vökva burt með skeið.
  4. Raðið þá ostsneiðunum ofan á neðri hlutann á bollunum, næst má setja hakkblönduna og jafna úr henni eins og unnt er og að lokum má setja rifna ostinn yfir.
  5. Skoðið skref 9 hér að ofan hjá bolluuppskriftinni.
  6. Gott er að bera þetta fram með kokteilsósu (sjá uppskrift að neðan), súrum gúrkum og kartöflubátum/frönskum.

Kokteilsósa

  • 200 g Hellmann‘s majónes
  • 40 g tómatsósa
  • 1 msk. sinnep

Aðferð:

  1. Pískið allt saman í skál og kælið fram að notkun.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert