Ljúffengur lax með æðislegri sósu

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Lax klikkar aldrei og hvað þá ef hann er borinn fram með dýrindis hollandaise-sósu en sú bragðpörun klikkar aldrei. Það er Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari einföldu uppskrift sem hittir alveg í mark. Með þessu ber hún fram smjörsteiktan aspas en hún bendir jafnframt á að auðvelt sé að bæta soðnum kartöflum við til að gera máltíðina saðsamari.

Lax með aspas og hollandaise-sósu

Fyrir um 4-6 manns

Hollandaise-sósa uppskrift

  • 2 pk. TORO hollandaise-sósa
  • 150 g smjör
  • 300 ml vatn
  • 200 ml nýmjólk
  • 2 tsk. sítrónusafi
  • Pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið í potti og hrærið sósuduftinu saman við.
  2. Setjið vatn og mjólk næst saman við. Þegar vökvinn nær suðumarki, lækkið hitann vel og leyfið að malla.
  3. Bragðbætið sósuna með sítrónusafa og pipar eftir smekk.
  4. Gott er að leyfa sósunni að malla á meðan þið útbúið aspasinn og laxinn.

Smjörsteiktur aspas

  • Um 600 g ferskur aspas
  • Um 70 g smjör
  • 3 hvítlauksrif
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Skerið endana af stönglunum og steikið aspasinn upp úr smjöri við miðlungshita í nokkrar mínútur eða þar til hann fer að mýkjast.
  2. Rífið hvítlaukinn þá niður og bætið á pönnuna og kryddið með salti og pipar.
  3. Steikið aðeins áfram eða þar til hvítlaukurinn ilmar vel og aspasinn er orðinn mjúkur.
  4. Færið aspasinn yfir á fat/diska og steikið næst laxinn.

Lax

  • Um 1200 g laxaflök/bitar
  • Smjör og ólífuolía til steikingar
  • Salt, pipar og fiskikrydd

Aðferð:

  1. Verið búin að roðfletta og þerra laxabitana vel áður en þið hefjist handa.
  2. Setjið pönnu á eldavélarhelluna og stillið á háan hita. Þegar pannan er orðin heit, setjið ríflega af smjöri í bland við ólífuolíu á pönnuna.
  3. Steikið fiskinn í 2-3 mínútur á hvorri hlið eða þar til hann er bleikur í gegn.
  4. Kryddið eftir smekk á báðum hliðum.
  5. Færið yfir á disk og njótið með aspas og hollandaise-sósu.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert