Pastarétturinn sem krakkarnir elska

Ljósmynd/Linda Ben

„Hér höfum við pastarétt sem ég geri mjög oft fyrir krakkana mína. Þau elska þennan rétt og borða sjaldan jafn vel og þegar hann er í matinn sem ég er alltaf mjög þakklát fyrir,“ segir Linda Ben um þennan réttt.

„Heilhveitipenne-pastað er bakað inni í ofni í rjómakryddostasósu með rifnum osti yfir. Rifni osturinn frá Örnu er einstaklega teygjanlegur og girnilegur þegar hann er bakaður, hann tekur þennan rétt á annað stig!“

Eins og margir foreldrar þekkja geta krakkar verið miklir matargikkir. „Dóttir mín sem er að verða þriggja ára er rosaleg þegar kemur að því að borða grænmeti og fæ ég hana mjög sjaldan til að borða slíkt. Ég þarf því að vera sérlega lúmsk til að koma grænmeti ofan í hana. Þessi aðferð, að skera sveppi ofursmátt niður og bera þá fram eins og hakk, hefur reynst mér mjög góð leið til að fá hana til að borða sveppi. Ég tala nú ekki um þegar þeir eru bornir fram með pasta í rjómaostasósu með rifnum bökuðum osti yfir, en þessi réttur er algjört lostæti og er hún yfirleitt búin að borða á sig gat áður hún fer að pæla nokkuð í því að mögulega gæti leynst grænmeti í réttinum.

Sveppir eru líka prótín og afar næringarríkir og því er þetta alveg ágætis staðgengill fyrir kjöt og leið til að auka grænmetisinntöku fjölskyldunnar.“

Pennepasta með sveppa„hakki“

  • 300 g gróft pennepasta
  • 1 msk smjör
  • 1 laukur
  • 250 g sveppir
  • 3 hvítlauksgeirar
  • u.þ.b. 4-5 greinar af fersku timíani, annars 1 tsk þurrkað
  • 1 tsk þurrkað oreganó
  • 150 g kryddostur með pipar frá Örnu Mjólkurvörum
  • 500 ml rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
  • 1 tsk sojasósa
  • 150 g rifinn ostur frá Örnu Mjólkurvörum

Aðferð:

  1. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum þangað til það er ekki alveg soðið í gegn heldur ennþá örlítið stíft.
  2. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.
  3. Á meðan pastað er að sjóða, skerið þá laukinn smátt og steikið upp úr 1/2 msk af smjöri.
  4. Skerið sveppina mjög smátt niður þar til áferðin minnir á hakk, bætið þá á pönnuna ásamt 1/2 msk af smjöri, steikið þar til mjúkir í gegn.
  5. Pressið hvítlauksgeirana með hvítlaukspressu út á pönnuna og steikið.
  6. Bætið timíani og oreganói út á pönnuna.
  7. Hellið rjómanum á pönnuna og rífið kryddostinn niður með rifjárni út á. Leyfið að malla á pönnunni þar til osturinn hefur bráðnað saman við, bætið þá svolítið af sojasósu á pönnuna og látið malla örlítið lengur.
  8. Hellið vatninu af pastanu og bætið út á pönnuna, blandið öllu vel saman.
  9. Setjið rifinn ost yfir og bakið inn í ofni í u.þ.b. 20 mín eða þar til osturinn er byrjaður að brúnast.
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert