Eldsnöggar nauta- og grænmetisnúðlur sem þú átt eftir að elska!

Ljósmynd/Linda Ben

„Það tekur um það bil 15 mín að smella í þennan gómsæta núðlurétt með nautaþynnum og fullt af grænmeti. Til að gera þennan núðlurétt byrjar maður á því að útbúa sósuna og sker svo niður grænmetið. Grænmetið er soðið í örfáar mínútur til að flýta fyrir elduninni á meðan maður steikir kjötið. Svo smellir maður grænmetinu á pönnuna með kjötinu og hellir sósunni yfir. Bætir svo soðnu núðlunum yfir, dreifir örlítið af vorlauk og sesamfræjum yfir og þá er rétturinn tilbúinn,“ segir Linda Ben um þennan rétt sem er eiginlega nauðsynlegt að prófa.

Eldsnöggar nauta- og grænmetisnúðlur

  • Eggjanúðlur, 3 búnt
  • 400 g nautaþynnur frá SS
  • 1/2 haus brokkolí
  • 1/2 rauð paprika
  • 3 gulrætur
  • 1 msk. sesamolía
  • 3 vorlaukar
  • 1 msk. sesamfræ

Sósa:

  • 5 msk. sojasósa (með litlu salti)
  • 3 msk. ostrusósa
  • 1 1/2 msk. tómatsósa
  • 3 hvítlauksgeirar
  • engifer, u.þ.b. 4 cm
  • 1 msk. hvítvínsedik

Aðferð:

  1. Byrjið á því að útbúa sósuna með því að setja sojasósu, ostrusósu og tómatsósu í skál. Pressið hvítlauksgeirana út í og rífið engiferið út í með rifjárni. Bætið hvítvínsedikinu út í og hrærið öllu saman.
  2. Setjið vatn í pott og náið upp suðu.
  3. Skerið brokkolíið í smærri vendi og gulræturnar í strimla, smellið því ofan í pottinn í ca. 5 mín.
  4. Á meðan setjið þið sesamolíu á pönnu og steikið nautakjötið þar til það er byrjað að brúnast.
  5. Skerið þið papriku niður í strimla og bætið henni út á pönnuna, takið brokkolíið og gulræturnar upp úr pottinum og setjið á pönnuna. Steikið saman.
  6. Slökkvið undir vatninu og setjið núðlurnar ofan í sjóðandi heitt vatnið, losið um núðlurnar með gaffli og látið standa í 3-4 mín (aðferðin getur verið mismunandi eftir tegundum, svo lestu leiðbeiningarnar á núðlupakkningnunni til öryggis).
  7. Hellið sósunni á pönnuna og hrærið, bætið svo núðlunum út á, hrærið öllu saman.
  8. Skerið vorlaukinn smátt niður og dreifið yfir núðlurnar ásamt sesamfræjum.
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert