María kolféll fyrir nýja IKEA réttinum

Ljósmynd/María Gomez

Í nýlegri heimsókn í IKEA bragðaði María Gomez á Paz.is á nýjasta réttinum á kaffihúsinu þar og kolféll fyrir honum.

Hún ákvað að endurskapa réttinn heima hjá sér og segir að það hafi heppnist einstaklega vel. Margur kunni að halda að uppskriftin sé flókin en svo sé alls ekki. Best sé að byrja á vöffludeiginu því það þurfi að hefast.

Heimilismeðlimir voru, að sögn Maríu, himinlifandi með útkomuna enda María flinkari en flestir í að endurgera frægar uppskriftir með þessum hætti.

Best er að gera réttinn í þessari röð; vöffludeig, kjúklinginn, sósuna meðan kjúllinn er í ofninum og baka svo vöfflurnar þegar kjúklingurinn er kominn úr ofninum.

Ljósmynd/María Gomez

Vaffla með stökkum kjúkling BBQ sósu og avókadó-hvítlaukssósu

Vöffludeig 

  • 250 g hveiti

  • 50 g grófur hrásykur frá Dan sukker (mikilvægt að nota þennan til að gera þær stökkar) 

  • 150 g bráðið smjör 

  • 6 g ferskt pressuger eða 12 gr þurrger 

  • 1 egg 

  • 1/2 tsk. fínt borðsalt 

  • 210 g léttmjólk 

  • Meiri hrásykur frá Dan sukker til að sáldra yfir deigið í járninu (útskýri seinna) 

Kjúklingurinn

  • 700 g úrbeinuð kjúklingalæri frá Rose Poultry 

  • 2 egg 

  • 170 g osta nacho snakk 

  • 100 g panko rasp (ath ekki paxo, en Panko fæst oftast hjá Kínamatnum) 

  • 1-2 dl hveiti 

Ath ef þið eigið ekki þessi krydd þá má líka bara nota gott kjúklingakydd í staðinn, en nota þá eins og 1 msk. af því út í egginn

  • 1 tsk. sykur 

  • 1 tsk. fínt borðsalt 

  • 1 tsk. paprikuduft 

  • 1 tsk. chilliduft 

  • 1 tsk. svartur pipar 

  • 1 tsk. laukduft (onion powder) 

  • 1 tsk. hvítlauksduft (garlic powder, passa þetta er ekki hvítlaukssalt) 

  • 1 tsk. kóríanderduft 

avókadó-hvítlaukssósa

  • 1 dl majónes en ég nota alltaf frá Heinz í svona sósur en það er bara laaaanbest og svo silkimjúkt 

  • 1 stk þroskað avókadó eða um 120 gr 

  • 2-3 marinn hvítlauksrif 

  • 1 msk nýkreystur sítrónusafi 

Svo þarf BBQ sósu líka með réttinum en ég hvet ykkur til að hafa Heinz sweet BBQ sticky and smooth sósuna en hún er algjörlega fullkomin með þessu og allra besta BBQ sósa sem ég hef smakkað ! 

Vöffludeig 

  1. Byrjið á að gera vöffludeigið fyrst af öllu 
  2. Setjið öll þurrefni saman í skál og hrærið með skeið eða sleif (ef þið notið þurrger þá setjið þið það með hér líka) 
  3. Bætið næst við bræddu smjörinu, mjólkinni og egginu og ef þið notið pressuger er það sett út í á þessu stigi 
  4. Hrærið öllu vel saman með sleif en deigið er ekki eins og hefðbundið fljótandi vöffludeig heldur meira eins og þunnt brauðdeig og þannig á það að vera
  5. Breiðið stykki yfir skálina og setjið á volgan stað og leyfið deiginu að hefast meðan kjúklingur og sósan er útbúið 

Kjúklingurinn 

  1. Setjið hveiti á einn disk og egg á annan disk
  2. setjið öll kryddinn útí egginn og pískrið vel saman 
  3. Setjið svo panko rasp og nachos í blandara og myljið þar til það er orðin eins og fínn raspur og setjið á þriðja diskinn 
  4. Veltið svo lærunum einu í einu upp úr hveitinu fyrst, svo egginu og svo nachoblöndunni síðast og setjið á ofnplötu með smjörpappa á 
  5. Eldið í ofni á 200 °C hita með blástri eða 210 °C án blásturs í 30-35 mínútur og gerið hvítlaukssósuna á meðan 

Avókadó-hvítlaukssósa

  1. Takið avókadó úr hýðinu og setjið í blandara ásamt majónesinu, mörðum hvítlauksrifum og sítrónusafanum og blandið þar til er orðin silkimjúk og kekkjalaus og geggjað góð sósa sem er fallega fölgræn 

Samsetning 

  1. Þegar lærin koma úr ofninum er gott að vera búin að hita belgískt vöfflujárn og gera reddý til að baka vöfflurnar 
  2. Bakið nú vöfflurnar en þegar ég er búin að setja deigið á járnið, og áður en ég loka því, þá strái ég ögn af grófa Dan sukker hrásykrinum yfir svo þær verði stökkar. Ekki of mikið bara eins og ef þið væruð að strá smá salti yfir og passið að baka deigið þar til það er orðið alveg tilbúið og frekar dökkt 
  3. Setjið svo eitt læri ofan á vöfflu og svo BBQ sósu og avókadó-hvítlaukssósu yfir og njótið !! 
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert