Þetta þarftu að vita um púðursykur og salt

Við elskum að sýsla í eldhúsinu.
Við elskum að sýsla í eldhúsinu. mbl.is/Pinterest

Við þurfum að vita svo margt er kemur að góðum húsráðum  og meðal annars þetta hér sem snertir púðursykur og salt. Því sumt er einfaldlega bara svo gott að vita. 

Púðursykur
Púðursykur á það til að harðna ansi fljótt og til að halda honum dúnmjúkum er best að henda appelsínuberki með í ílátið og sykurinn verður rakur til lengri tíma. 

Salt
Til að forðast að saltið hlaupi í kekki er snilldarráð að henda hrísgrjónum í botninn og þá mun þetta vesen ekki verða til ama.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert