Pastasósan sem sögð er sú besta í heimi

Besta pastasósa í heimi inniheldur þrjú hráefni.
Besta pastasósa í heimi inniheldur þrjú hráefni. mbl.is/Chelsea Kyle

Hér bjóðum við upp á bestu pastasósu í heimi - og já, við tökum svo stórt til orða því sósan er sú allra besta. Heiðurinn á Marcella Hazan, sem birti uppskriftina fyrst í bók sinni 'Essentials of Classic Italian Cooking' og hefur hlotið ómælda athygli fyrir einfaldleika sósunnar.

Besta pastasósa í heimi - punktur

  • 800 gr. plómutómatar
  • 1 hvítur laukur, skorinn til helminga
  • 5 msk. smjör
  • Salt eftir smekk (tæknilega séð fjórða hráefnið) 

Aðferð:

  1. Setjið allt í stóran pott og látið malla á meðalhita í 45 mínútur. Hrærið í sósunni annað slagið. 
  2. Þegar sósan er tilbúin, takið þá laukhelmingana úr pottinum og berið fram. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert