Sjúklega lekkert og bragðgott focacciabrauð

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Nýbakað focacciabrauð er hreint út sagt guðdómlegt! Einfalt brauðdeig, toppað með góðri olíu og kryddi! Þetta ráða allir við að gera og brauðið er gott eitt og sér, með góðu pestói/mauki eða sem meðlæti með öðrum mat,“ segir Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is um þetta dásamlega brauð sem hér er bakað í eldföstu móti sem toppar huggulegheitin alveg hreint.

Focacciabrauð

Deig

  • 450 g hveiti
  • 2 tsk. salt
  • 4 msk. Lie Gourmet-basilólífuolía
  • 300 ml volgt vatn
  • 1 pk. þurrger (11,8 g)
  • 2 msk. sykur

Aðferð:

  1. Hrærið vatn, þurrger og sykur saman í skál og leyfið að standa í um 5 mínútur þar til gerið fer að freyða.
  2. Blandið hveiti og salti saman í hrærivélarskálina og setjið krókinn á og kveikið á lægsta hraða.
  3. Hellið gerblöndunni og ólífuolíunni saman við og hnoðið í um 2 mínútur á meðalhraða.
  4. Deigið á að vera eins klístrað og þið þolið.
  5. Smyrjið skál að innan með ólífuolíu, hnoðið deigið í kúlu og veltið upp úr olíunni í skálinni.
  6. Plastið og leyfið að hefast í um 45 mínútur.
  7. Smyrjið næst eldfast mót/skúffukökuform að innan með ólífuolíu og flytjið deigið þangað yfir. Ýtið því með fingrunum út í alla kanta og reynið að jafna það eins og unnt er.
  8. Þrýstið fingrunum niður til að gera holur í brauðið, plastið aftur, leyfið að hefast í um 45 mínútur og hitið ofninn á meðan í 200°C.
  9. Toppið með olíu og kryddum (sjá toppur hér að neðan) eftir hefun og bakið í 15-18 mínútur eða þar til brauðið fer að gyllast og losna örlítið frá köntunum.
  10. Þegar brauðið kemur út má setja smá meiri basilólífuolíu yfir allt saman og njóta með góðu pestói eða öðru mauki.

Toppur og meðlæti

  • Lie Gourmet-bruschettukrydd
  • Lie Gourmet-salt með rósmaríni, papriku og chili
  • Lie Gourmet-piparblanda með 5 mismunandi piparkornum
  • Lie Gourmet-basilólífuolía (um 3 msk. + meira eftir bakstur)
  • Lie Gourmet-pestó eða tartinade að eigin vali er síðan fullkomið til að smyrja á brauðið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert