Salatið sem sigrar matarborðið

Salat með rauðkáli, bláberjum og chili dressingu.
Salat með rauðkáli, bláberjum og chili dressingu. mbl.is/Jana

Við höfum vart séð fallegra salat sem þetta hér - í haustlitum sem mun skreyta matarborðið eitt og sér. Uppskriftin er frá Jönu, sem á sér engan líkan er kemur að samsetninu með hráefnin. 

Salatið sem sigrar matarborðið

  • 1/4 haus rauðkál, skorið fínt
  • 1/2 bolli bláber
  • Dressing:
  • 1/2 búnt kóríander, smátt skorið
  • 1 pressaður hvítlaukur
  • 2 msk. balsamikedik
  • 1 msk. hlynsíríóp
  • 1 dl. ólífuolía
  • 1 tsk. fennel fræ
  • 1/2 tsk. chili flögur
  • 5 msk. valhnetur muldar
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Allt hrisst saman og hellt yfir rauðkálið og bláberin. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert