Huggulegustu pönnukökur sem sést hafa lengi

Ljósmynd/María Gomez

Sú var tíðin að mannkynið taldi að jörðin væri flöt. Rétt eins og pönnukaka. Við reiknum með að flestir hafi orðið jafn hissa að heyra að við værum í reynd á kúlu eins og við hér á matarvef mbl þegar við áttuðum okkur á því að hinar hollensku poffertjes pönnukökur væru kringlóttar.

Þær eru jafnframt algjör lostæti og einstaklega fallegar á borði þannig að við mælum heilshugar með að þið prófið þær.

Það er engin önnur en María Gomez á Paz.is sem á heiðurinn að þessari uppskrift en hér eru þær bornar fram með hlynsíróp smjöri sem er mögulega það snjallasta sem við höfum heyrt um lengi.

Poffertjes hollenskar pönnukökur með maple smjöri

Poffertjes deig 

  • 350 ml mjólk eða 3,5 dl 
  • 1 tsk. þurrger 
  • 150 g hveiti 
  • 100 g bókhveiti (það má líka sleppa bókhveiti og nota venjulegt hveiti í staðinn, en hefðbundnar eru alltaf með bókvheiti í Hollandi, fæst í Fjarðarkaup, Hagkaup, Krónunni og víðar) 
  • 2 msk. sykur 
  • 1/2 tsk. fínt borðsalt 
  • 1 egg 
  • 1 tsk. vanilludropar
  • Smjör til steikingar 
  • Flórsykur til að sáldra yfir tilbúnar pönnukökurnar

Maple smjör 

  • 115 g kalt smjör 
  • 1/2 bolli Rapunzel maple síróp 
  • 1/2-1 tsk. gróft salt 

Aðferð

Poffertjes deig 

  1. Setjið öll þurrefnin saman í skál og hrærið (líka þurrgerið).
  2. Velgjið mjólkina í örbylgju og hafið hana ögn heitari en ylvolga.
  3. Setjið svo eggið út í ásamt mjólkinni og vanilludropunum og hrærið vel saman án þess að ofhræra, bara svo það blandist rétt saman.
  4. Leggjið plastfilmu yfir skálina og hefið á volgum stað í 1 klst.
  5. Þegar deigið er búið að hefast hitið þá eplaskífu eða profertjes pönnu og penslið hvert hólf með bræddu smjöri.
  6. Mér finnst best að hella deiginu í könnu með stút og hella í hvert gat á pönnunni til hálfs.
  7. Bakið þar til koma göt ofan á pönnukökuna og snúið henni þá við með tveimur grillpinnum eða oddhvössum hlut t.d stórri nál eða eitthvað sem líkist grillpinna og bakið svo hina hliðina þar til verður gyllinbrún eða í eins og í 1-2 mínútur.

Maple smjör 

  1. Hitið Rapunzel maple sírópið í potti við vægan hita, bara hita ekki sjóða.
  2. Setjið svo kalt smjör og salt út í og látið smjörið bráðna vel saman við og hrærið vel í þegar það er alveg bráðnað.
  3. Berið svo fram heitt með pönnukökunum en þetta er einnig mjög gott með hefðbundnum amerískum pönnukökum sem dæmi.

Borið fram 

  1. Berið pönnukökurnar fram heitar og sáldrið smá flórsykri yfir þær.
  2. Mér finnst rosa gott að hafa niðursneiddan banana með og hella svo heitu maple smjörinu yfir.
Ljósmynd/María Gomez
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert