Eldhúsið þar sem smáatriðin stela senunni

mbl.is/Adam Helbaoui

Það er í þessu eldhúsi þar sem smáatriðin eru upp á tíu og gott betur en það. 

Hér sjáum við gullfallega hönnun frá 'Kitchens by Paul', þar sem díteilarnir stela senunni. Dökkur viður er í innréttingunni sem byggist upp með eyju og loftháum skápum. Hvítur Carrara marmari skreytir borðplötu og vegginn þar sem brasseruð viftan er eins og rokkstjarna í rýminu og stelur allri athyglinni. Eins má sjá glerskáp sem brýtur upp stemninguna á móti herringbone gólfefninu. Við bendum þá einnig á innstungurnar í veggnum sem eru með þeim flottari sem við höfum séð til þessa. 

mbl.is/Adam Helbaoui
mbl.is/Adam Helbaoui
mbl.is/Adam Helbaoui
mbl.is/Adam Helbaoui
mbl.is/Adam Helbaoui
mbl.is/Adam Helbaoui
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert