Drykkurinn sem leysir jólaglögg af hólmi

Drykkurinn sem setur jólin á fóninn.
Drykkurinn sem setur jólin á fóninn. mbl.is/Mizina_Getty Images

Hér er drykkur sem kveikir á jólaandanum. Þessi unaðsblanda smakkast af piparkökum og rommi - eða drykkur sem leysir hið klassíska glögg af hólmi. 

Drykkurinn sem leysir jólaglögg af hólmi

  • 5 cl sterkt romm
  • 9 cl heitt vatn
  • 1 msk. butter-batter (sjá uppskrift fyrir neðan)
  • Stjörnuanís og kanilstöng til skrauts

Butter-batter

  • 250 g mjúkt ósaltað smjör
  • 250 g sykur
  • 250 g dökkur hrásykur
  • 500 g vanilluís
  • 1 tsk. kanill
  • 1 msk. stjörnuanís
  • 1 msk. negull
  • 1 msk. múskat

Aðferð:

  1. Butter-batter: Blandið öllum kryddum og hvíta sykrinum saman í blandara og hrærið þar til massinn er orðinn einsleitur. Bætið þá hrásykrinum saman við og blandið saman. Blandið mjúku smjörinu saman við og því næst kemur vanilluísinn. Hellið blöndunni í krukku og setjið í kæli. 
  2. Drykkurinn: Blandið heita vatninu saman við butter-batter þar til það leysist upp. Bætið þá rommi saman við og hrærið. Skreytið drykkinn með stjörnuanís og kanilstöng.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert