Eitt Sett Sörur sem sagðar eru rosalegar

Þessar sörur eru sagðar í algjörum sérflokki og við efumst ekki um það eina mínútu. Það er löngu þekkt að lakkrís gerir allt betra – þá sérstaklega bakstur.

Þessi uppskrift kemur frá Lindu Ben og á heima í nýjasta kökubæklingi Nóa Síríusar.

Linda klikkar ekki fremur en fyrri daginn og við lofum að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum með þessar sörur.

Eitt Sett Sörur

Krem

  • 3 eggjarauður
  • 100 g vatn
  • 100 g sykur
  • 300 g Eitt Sett rjómasúkkulaði
  • 100 g mjúkt smjör

Botnar

  • 3 eggjahvítur
  • 1/3 tsk. salt
  • 1/3 tsk. cream of tartar
  • 50 g sykur
  • 200 g flórsykur
  • 200 g möndlumjöl

Hjúpur

  • 400 g 56% Síríus barón súkkulaði

Aðferð:

  • Byrjið á því að útbúa kremið.
    Þeytið eggjarauður í hrærivél þar til blandan er orðin létt og ljós. Hitið vatn og sykur í potti í um 3 mínútur eða þar til sykurinn hefur náð að leysast upp í vatninu. Hellið sykurvatninu saman við eggjarauðurnar í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan. Þeytið þar til blandan er loftmikil og nánast hvít að lit.
  • Bræðið Eitt Sett súkkulaðið. Hellið því næst súkkulaðibráðinni saman við eggjablönduna í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan. Stoppið reglulega og skafið hliðar skálarinnar með sleikju svo allt blandist vel saman. Skerið mjúka smjörið í litla bita og þeytið það saman við.
  • Geymið kremið inni í ísskáp í um klukkutíma eða á meðan verið er að útbúa botnana.
  • Kveikið á ofninum og stillið á 175°C með yfir- og undirhita.
  • Setjið eggjahvítur í skál ásamt salti og cream of tartar, þeytið þar til blandan freyðir og bætið þá sykrinum út í. Þeytið þar til stífir toppar myndast.
  • Blandið saman flórsykri og möndlumjöli. Bætið út í eggjahvítublönduna og veltið varlega saman við með sleikju þar til samlagað.
  • Hellið deiginu ofan í sprautupoka með hringlaga stút.
  • Sprautið á smjörpappírsklæddar ofnplötur þannig að hver kaka sé u.þ.b. 4 cm í þvermál, passið að hafa u.þ.b. 2-3 cm bil á milli þeirra svo að þær klessist ekki saman í ofninum.
  • Bakið í u.þ.b. 12 mín. Leyfið kökunum að kólna.
  • Smyrjið kremi á hverja köku svo það sé kúpt í miðjunni en þynnist út að köntunum.
  • Kælið kökurnar í stutta stund.
  • Bræðið loks súkkulaði yfir vatnsbaði og hjúpið hverja köku með því að dýfa kreminu ofan í súkkulaðið. Leggið kökurnar á grind á meðan súkkulaðið storknar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert