Þurftu stiga til að geta skorið kökuna

Á myndinni til vinstri sjást brúðhjónin upp í stiga en …
Á myndinni til vinstri sjást brúðhjónin upp í stiga en vinstra megin sést brúðurin, Naomi Biden ásamt ömmu sinnu, forsetafrú Bandaríkjanna, Jill Biden. mbl.is/Samsett mynd

Á dögunum var haldið feiknarinnar brúðkaup í Hvíta húsinu þegar að sonardóttir Biden-hjónanna, Naomi Biden, gekk að eiga unnusta sinn, Peter Neal.

Þetta er einungis 19 brúðkaupið sem haldið er í Hvíta húsinu en eins og gefur að skilja var mikið um dýrðir. Naomi er dóttir elsta sonar forsetahjónanna, Hunter Biden, en hún er 28 ára gömul.

Kakan vakti sérstaka eftirtekt en hún var 2,4 metrar á hæð og þurftu brúðhjónin að klöngrast upp í stiga til að að geta skorið hana.

Flestir myndu flokka það sem óþarfa áhættuatriði í brúðkaupi en allt gekk þó að óskum og enginn slasaðist við kökuskurðinn.

Bandaríska tímaritið Vogue fjallaði um brúðkaupið í máli og myndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert