Íslenska landsliðið ætlar sér gull í dag

Ljósmynd/Brynja Kr.Thorlacius

Heimsmeistaramótið í matreiðslu var sett í gær í Lúxemborg og Íslenska kokkalandsliðið er að sjálfsögðu mætt til leiks. Liðið ætlar að fylgja eftir framúrskarandi árangri liðsins frá síðustu Ólympíuleikum í Stuttgart þar sem þau fengu brons verðlaun fyrir samanlagðan árangur í byrjun árs 2020. Jafnframt hlaut íslenska liðið hlaut gullverðlaun fyrir frammistöðu sína á síðasta heimsmeistaramóti árið 2018.

Landsliðið kom til Lúxemborg á fimmtudag og hefur verið að leggja lokahönd á undirbúninginn síðan. Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara sem rekur íslenska Kokkalandsliðið segir undirbúninginn og ferðalagið hafa gengið vel og æfingar síðustu mánaða gefi ekki annað en ástæðu til bjartsýni. Í dag er keppt í þriggja rétt heitum matseðli sem eldaður er fyrir 110 manns. Síðan verður liðið aftur á keppnisvellinum næst komandi þriðjudag þegar keppt er í þrettán rétta fine-dining máltíð fyr­ir 12 manns, svokölluðu Chef’s Table.

Keppn­ismat­reiðsla er í raun­inni frá­drátt­ar­keppni og er fyrirkomulagið þannig að það byrja all­ir með 100 stig sem lækk­ar síðan með til­liti til snyrti­mennsku, fag­mennsku, út­lits rétta og bragðs. Gull­frammistaða er 90 stig, silf­ur 80 stig og brons 70 stig. Á mót­inu í ár eru um 20 lönd sem taka þátt. Úrslit verða svo kynnt Lúxemborg á fimmtudaginn og liðið kemur svo heim á föstudag.

Íslenska kokkalandsliðið skipa:

Þjálfari: Ari Þór Gunnarsson Fastus

Fyrirliði: Sindri Guðbrandur Sigurðsson veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar

Aron Gísla Helgason, veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar
Gabríel Kristinn Bjarnason, veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar
Ísak Darri Þorsteinsson, veitingastaðnum Tides
Erla Þóra Bergmann, Pálmadóttir veitingastaðnum Fjallkonan
Jakob Zarioh S. Baldvinsson, veitingastaðnum Sumac 
Sveinn Steinsson, Eflu verkfræðistofu 
Ísak Aron Jóhansson, Lux Veitingum
Chidapha Kruasaeng, Mosfellsbakarí og HR Konfekt
Ívar Kjartansson, veisluþjónustunni Rétturinum
Aþena Þöll Gunnarsdóttir, veitingastaðnum Fiskfélaginu
Hringur Oddsson, veitingastaðnum Tides
Marteinn Rastrick, Lux Veitingum

Ljósmynd/Brynja Kr.Thorlacius
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert