Michelin maðurinn mætir á Moss

Ollie og Agnar hafa þekkst í yfir 20 ár.
Ollie og Agnar hafa þekkst í yfir 20 ár.

Moss, veitingastaður Bláa Lónsins mun bjóða velkominn Michelin-stjörnu kokkinn Ollie Dabbous í desember. Hann stofnaði og er yfirmatreiðslumeistari á hinum þekkta veitingastað Hide í London.

Staðurinn var opnaður árið 2018 og fékk nokkrum mánuðum síðar Michelin-stjörnu. Áður en hann opnaði Hide átti hann Michelin-stjörnuveitingastaðinn sem er nefndur eftir honum sjálfum, Dabbous. Þetta eru ekki einu staðirnir sem Ollie hefur starfað á sem skarta hinum eftirsóknarverðu stjörnum. Hann starfaði einnig sem matreiðslumeistari hjá Noma, The Fat Duck og Texture. Ollie hefur gefið út matreiðslubækur og var dómari í breska MasterChef.

„Við Ollie kynntumst árið 2001 þegar við unnum báðir hjá Le Manoir hjá Raymond Blanc í Bretlandi. Hann er frábær matreiðslumeistari með einstakan stíl og það er mikill heiður að fá að taka á móti honum hér hjá okkur,“ segir Agnar Sverrisson, yfirmatreiðslumeistari Moss.

Ollie mun elda sex rétta matseðil fyrir gesti Moss 2. og 3. desember ásamt Agnari. Á sama tíma mun hinn þekkti vínþjónn Clément Robert sjá um vínpörun með matseðlinum. Hann lærði á Michelin-stjörnustað í Loire-dalnum í Frakklandi og var valinn vínþjónn ársins í Bretlandi árið 2013. Síðustu ár hefur hann starfað sem yfirvínþjónn hjá Caprice Holdings Ltd sem rekur þekkta veitingastaði sem eru mörgum Íslendingum kunnugir. Má þar nefna Scott´s, Sexy Fish og Balthazar.

Matreiðslumaðurinn Ollie Dabbous verður á veitingastaðnum Moss í byrjun desember.
Matreiðslumaðurinn Ollie Dabbous verður á veitingastaðnum Moss í byrjun desember.

Agnar Sverrisson tók við sem yfirmatreiðslumeistari á Moss árið 2020. Hann lærði hjá hinum fræga matreiðslumeistara Raymond Blanc á Le Manoir aux Quat'Saisons í Bretlandi. Hann stofnaði síðar veitingastaðinn Texture í London sem fékk Michelin-stjörnu árið 2010 og hélt henni í 10 ár þangað til Agnar lokaði staðnum og flutti aftur heim á ný.

Þetta er í annað sinn sem Michelin-stjörnumatreiðslumeistari eldar fyrir gesti Moss á þessu ári en í febrúar kom til landsins fyrrnefndur Raymond Blanc.

Veitingastaðurinn Moss tilheyrir Retreat-hóteli Bláa Lónsins.

Agnar Sverrisson, yfirmatreiðslumeistari Moss.
Agnar Sverrisson, yfirmatreiðslumeistari Moss.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert