Vinsælasta jólahefð allra tíma

Það hefur tíðkast að setja negul í appelsínur frá 19. öld – og þykir ein vinsælasta jólahefð víðsvegar um heiminn. Vinsældirnar hafa sannarlega ekki dvínað með árunum, enda afskaplega látlaust en fallegt jólaskraut sem ilmar og færir jólaangann í hús.

En það eru ýmsar aðrar leiðir til að skreyta heimilið með appelsínum – þá með því að skera þær í sneiðar og þurrka í ofni. Hér er hin fullkomna samverustund fyrir fjölskylduna á aðventunni. Og uppskriftina fáið þið hér! 

Svona þurrkar þú appelsínur

  • Hitið ofninn í 100 gráður. 
  • Skerið appelsínur í 1 sm þykkar sneiðar.
  • Leggið skífurnar á bökunarpappír á bökunarplötu.
  • Bakið í ofni í 1 tíma. 
  • Látið kólna á rist. 
  • Notið skífurnar sem jólaskraut með greni, kanilstöngum eða jólakúlum. 
mbl.is/Pinterest
mbl.is/Pinterest
mbl.is/Pinterest
mbl.is/Pinterest
mbl.is/Pinterest
mbl.is/Pinterest
mbl.is/Pinterest
mbl.is/Pinterest
Það er gömul jólahefð að setja negul í appelsínur.
Það er gömul jólahefð að setja negul í appelsínur. mbl.is/Getty
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert