Listvíettur til styrktar góðu málefni

Listvíettur er nýtt samstarfsverkefni Epal og Reykjavík Letterpress. Allur ágóði …
Listvíettur er nýtt samstarfsverkefni Epal og Reykjavík Letterpress. Allur ágóði servíettanna rennur til Barnaspítala Hringsins. mbl.is/Mynd aðsend

Verslunin Epal og hönnunarstofan Reykjavík Letterpress hafa tekið höndum saman og fá að borðinu listamenn orða og mynda, til þess að fanga einfaldleika servíettuformsins. Hér um ræðir servíettur sem þjóna tvenns konar tilgangi - annars vegar í notagildi og hins vegar til að styrkja gott málefni, og það kunnum við vel að meta. 

Það er myndlistarmaðurinn Leifur Ýmir Eyjólfsson sem ríður á vaðið og gefur verk sitt til málefnisins - en hann tengir munnþurrkurnar við þann skemmtlega leik að mata börn. Leifur Ýmir er fæddur á níunda áratug síðustu aldar og býr og starfar í Reykjavík. Leifur útskrifaðist frá Listaháskólanum og hefur haldið ótal sýningar hér heima og erlendis. Eins hefur hann hlotið viðurkenningar fyrir störf sín og eru verk hans í eigu safna og fjölda einstaklinga. 

Allur ágóði af sölu rennur til Barnaspítala Hringsins og koma listvíetturnar í takmörkuðu upplagi og fást HÉR

mbl.is/Mynd aðsend
mbl.is/Mynd aðsend
mbl.is/Mynd aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert