Það er svo gaman að prófa nýja kjúklingarétti. Rjómalagaðir og ofnbakaðir slíkir klikka hreinlega aldrei og hér er komin skemmtileg útfærsla af slíkum með ítölsku ívafi.
Kjúklingaréttur í ofni með ítölsku ívafi
Fyrir um 3-4 manns
· 6 kjúklingalæri (upplæri)
· 1 laukur
· 2 hvítlauksrif
· 1 dós ítalskur smurostur (300 g) frá MS
· 400 ml rjómi
· 1 box (180 g) Piccolo tómatar
· Fersk basilika
· Ólífuolía og smjör til steikingar
· Salt, pipar og kjúklingakrydd
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 170°C.
2. Brúnið kjúklingalærin upp úr blöndu af ólífuolíu og smjöri við meðalháan hita.
3. Kryddið eftir smekk og brúnið vel á báðum hliðum, leggið næst í eldfast mót og útbúið sósuna.
4. Saxið laukinn smátt og mýkið á pönnu upp úr smjöri og olíu. Kryddið með salti og pipar.
5. Rífið hvítlaukinn saman við laukinn og steikið stutta stund til viðbótar og hellið næst helming rjómans á pönnuna.
6. Bætið smurostinum næst saman við og hrærið þar til hann er bráðinn og bætið þá restinni af rjómanum út á og hrærið vel.
7. Hellið yfir kjúklingalærin í fatinu, dreifið úr tómötunum yfir allt og bakið í ofni í um 25-30 mínútur.
8. Berið fram með ferskri basiliku.