Eina leiðin til að þrífa kristalsglösin

Ljósmynd/Colourbox

Kominn er tími til að dusta rykið af kristalsglösunum og drekka úr þeim fram yfir áramót. En það er ekki í hreingerningarskápinn sem þú átt að leita eftir efnum til að þrífa glösin sem komin eru til ára sinna – heldur í eldhúsið.

Kristalsglös eru falleg að horfa á og drekka úr en það getur reynst erfitt að halda þeim hreinum og fínum. En áður en þú gefst upp skaltu prófa þetta einfalda ráð.

Þú þarft:

  • Edik
  • Vatn
  • Uppþvottalög
  • Klút

Aðferð:

  • Blandaðu vatni og ediki til helminga og dýfðu klútnum í blönduna.
  • Settu blautan klútinn yfir glasið og þá sérstaklega þar sem sést mest á því og láttu standa yfir nótt.
  • Þvoðu glasið daginn eftir eins og venja er og þurrkaðu yfir með mjúkum og þurrum klút. Glasið ætti að vera eins og nýtt!

Flestöll kristalsglös sem framleidd eru nú mega fara í uppþvottavélina án þess að það muni sjást á þeim. En gömul glös þola það ekki því í eldri glösum finnst oft á tíðum blý sem þolir illa hitann í uppþvottavélinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert