Dýrindis kaffitrufflur með Kahlúa

Kaffitrufflur með kahlua líkjöri eru ómótstæðilega góðar.
Kaffitrufflur með kahlua líkjöri eru ómótstæðilega góðar. mbl.is/GRGS

Kaffitrufflur með Kahlúa-kaffilíkjör eru mættar hér á borðið - ómótstæðilega gott konfekt sem fullkomnar jólahátíðina. Uppskriftin kemur frá Völlu á GRGS.

Dýrindis kaffitrufflur með Kahlúa

  • 250 g suðusúkkulaði
  • 120 ml rjómi
  • 2 msk. Kahlúa-kaffilíkjör
  • 1 tsk. skyndikaffiduft
  • 1 msk. smjör
  • 250 g rjómasúkkulaði
  • 50 g suðusúkkulaði
  • Kaffibaunir

Aðferð:

  1. Saxið súkkulaðið og setjið í hitaþolna skál.
  2. Setjið rjóma, kaffilíkjör, kaffiduft og smjör saman í lítinn pott og hitið að suðu. Hellið yfir súkkulaðið og látið standa í 1 mín. Hrærið saman og kælið yfir nótt.
  3. Takið skálina úr kæli og mótið litlar kúlur. Athugið að það þarf að vinna það svolítið hratt þar sem fyllingin gæti verið fljót að bráðna. Raðið kúlunum á plötu klædda bökunarpappír.
  4. Bræðið rjómasúkkulaði yfir vatnsbaði, temprið súkkulaðið. Dýfið hverri kúlu í súkkulaðið. Mér finnst best að nota tvo litla gaffla í verkið. Látið sem mest af súkkulaði leka af áður en kúlan er sett á bökunarpappírinn.
  5. Bræðið suðusúkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Dreifið óreglulega yfir hverja kúlu og skreytið með einni kaffibaun. Geymist í kæli.
mbl.is/GRGS
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert