Jólapeysurnar frá SS hitta í mark

Við áttum von á ýmsu en ekki því að heitustu jólapeysurnar í ár væru frá Sláturfélagi Suðurlands - betur þekktu sem SS.

Við erum að tala um fagurrauðar peysur með jólapylsu framan á. Í þessu tilfelli hafa fæst orð minnsta ábyrgð en ljóst er að ást þjóðarinnar á SS pylsum er mikil ef marka má heimildir Matarvefjar mbl.is en samkvæmt þeim eru peysurnar búnar að seljast eins og heitar lummur.... eða ættum við að segja eins og heitar pylsur!

Hægt er að skoða peysurnar nánar HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert