Flottustu espressóbollar sem sést hafa lengi

Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir hannar lífsstílsvörur undir nafninu IHANNA HOME.
Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir hannar lífsstílsvörur undir nafninu IHANNA HOME. mbl.is/

Þegar notagildið þjónar margs konar tilgangi, þá gleðjumst við. Og það á við um þessi nýju flottu ilmkerti sem eru í raun espressobollar  hannaðir af IHANNA HOME

Við styðjum íslenska hönnun alla leið enda margir flottir listamenn sem við eigum hér á landi. Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir er hönnuðurinn á bak við IHANNA HOME og hefur í áranna rás fært okkur ýmsar vörur til heimilisins sem gleðja augað. Nýjasta viðbótin í vörulínuna eru ilmkerti sem koma fjögur saman í pakka og eru í raun espressóbollar. Ilmkertin hafa verið fáanleg í stærri glösum sem henta fullkomlega undir kaffi, blóm eða annað sem manni dettur í hug  og koma kertin með fjórum mismunandi ilmum og grafík á glösunum sjálfum. 

Önnur nýjung eru viskastykki er kallast FJARA og ÖLDUR og eru í stíl við ilmkertin, og því fullkomin jólagjöf saman ef þið spyrjið okkur. Viskastykkin koma í bleiku og dökkgráu/ljósbláu og eru úr 100% bómull. Grafíkin í stykkjunum er ofin en ekki prentuð sem þýðir að gæðin eru upp á tíu  fyrir utan hvað þau halda sér vel og eru einstaklega rakadræg. 

Fleiri nýjungar fyrir þessi jólin eru dagatalakerti, teppið VÖFFLUR sem kemur í tveimur litum og síðast en ekki síst sængurverin SKYRTA og SAILOR  en sængurverin koma meðal annars í tvöfaldri stærð og sem extra langar, eða stærðir sem hefur vantað í úrvalið hér á landi.

Ilmkertin frá IHANNA eru æðisleg! En bollana má nota áfram …
Ilmkertin frá IHANNA eru æðisleg! En bollana má nota áfram undir kaffi, blóm, skriffæri eða annað sem manni dettur í hug. mbl.is/
Ný ilmkerti í espressobollum - koma fjögur saman í pakka …
Ný ilmkerti í espressobollum - koma fjögur saman í pakka með mismunandi ilmum og grafík myndum. mbl.is/
ÖLDUR viskustykkið kemur í bleiku/bleiku og FJARA kemur í dökkgráu/ljósbláu.
ÖLDUR viskustykkið kemur í bleiku/bleiku og FJARA kemur í dökkgráu/ljósbláu. mbl.is/
Dagatalakerti er nýjung frá IHANNA HOME.
Dagatalakerti er nýjung frá IHANNA HOME. mbl.is/
mbl.is/
Sængurfötin Skyrta og Sailor eru úr 100% percale bómull og …
Sængurfötin Skyrta og Sailor eru úr 100% percale bómull og koma í þremur litum og þremur stærðum hvor um sig og fást í stærðunum 140 x 200 cm / 140 x 220 cm / 200 x 220 cm. mbl.is/
mbl.is/
Vöfflur teppið er hannað með það að leiðarljósi að halda …
Vöfflur teppið er hannað með það að leiðarljósi að halda því stílhreinu og tímalausu og að ná látlausu mynstri út frá vefnaðinum. 100% ull og í stærðinni 130 x 200 cm. mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert