Dýrindis hangikjöts forréttur

Hangikjötsforréttur með mandarínum og gráðosti.
Hangikjötsforréttur með mandarínum og gráðosti. mbl.is/Íslenskt lambakjöt

Til er sá forréttur sem kemur bragðlaukunum á óvart, og það er þessi hér.

Hangikjöt með mandarínum, möndlum og gráðosti - namm! Uppskriftin tekur stutta stund að úbúa og mettar 4-6 maga. 

Jólaforréttur sem kemur bragðlaukunum á óvart

  • Reykt hangilæri á beini, vel reykt og hangið.
  • Ristaðar möndlur
  • Mandarínur, skrældar og skornar smátt
  • Gráðostur
  • Graslaukur, saxaður
  • Fljótandi hunang

Aðferð:

  1. Sneiðið af hráu lærinu eins þunnar sneiðar og þið getið og raðið á diska. 
  2. Setjið möndlur, mandarínur og graslauk yfir. Setjið nokkrar klípur af gráðosti á hvern disk og síðast ögn af hunangi. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert