Nammið sem þú mátt gæða þér á í janúar

Súkkulaðihúðaðar döðlur eru algjört sælgæti.
Súkkulaðihúðaðar döðlur eru algjört sælgæti. mbl.is/Jana

Hér bjóðum við upp á nartbita sem stela ekki af þér mittismálinu. Það er gott að eiga slíkt í kæli er sæta tönnin byrjar að kvarta. Uppskriftin kemur frá Jönu, sem segir að hér séu molar í hollari kantinum, en engu að síður afbragðsgóðir.

Nammið sem þú mátt gæða þér á í janúar

  • 10 ferskar döðlur (medjool)
  • 20 stykki pekanhnetur
  • 100 g gott dökkt súkkulaði 
  • smá gróft salt

Aðferð:

  1. Skerið döðlurnar í tvennt og takið steininn úr.
  2. Setjið í fat eða á bökunarpappír á stóran disk.
  3. Setjið eina pekanhnetu í hverja döðlu (færð 20 stk.).
  4. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði.
  5. Dreifið fljótandi heitu súkkulaðinu yfir döðlubitana og stráið því næst smá salti yfir hvern bita.
  6. Setjið inn í ísskáp og kælið, geymist í nokkra daga í ísskáp ef þeir verða ekki bara kláraðir um leið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert