Svona losnar þú við raka í gluggum

Þetta er árstíminn þar sem raki á til að myndast …
Þetta er árstíminn þar sem raki á til að myndast í gluggum. mbl.is/waunakeeremodeling.com

Kannastu við að sjá rakadropa liggja í gluggakistunni eða á glugganum sjálfum? Þá er þetta snjalla ráðið sem þú þarft að tileinka þér til að losna undan vandanum. En raki í gluggum er dagleg sjón, sérstaklega yfir vetrartímann þegar heitt mætir köldu. 

Loftaðu út
Ef þú hefur tök á, skaltu lofta út hið minnsta þrisvar sinnum í tíu mínútur yfir daginn.

Þurrkaðu af
Best er að þurrka af með eldhúspappír eða tusku. Bleyta í gluggum er ávísun á að mygla eða sveppir geti myndast.

Undir glugganum
Best er ef ofninn er staðsettur undir glugganum - þannig nær kaldur glugginn að haldast þurr í vetrarfrostinu.

Jafnt hitastig
Köld rými krefjast hita - reynið að halda hitanum ekki undir 17 gráðum.

Nýjir gluggar
Kannski er þörf á að skipta út glerinu með nýjum gluggum sem eru sérhannaðir til að halda köldu lofti úti og hitanum inni? Eitthvað sem vert er að skoða.

Rakastig
Gott er að fjárfesta í rakamæli til að meta stöðuna í húsinu. Best er, ef rakastigið fer ekki undir 50-55 prósent yfir vetrarmánuðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert