Uppskriftin sem gleymdist að setja í bókina

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Þessi frábæra og undursamlega uppskrift var útbúin í fyrra fyrir bókina „Börnin baka“ en endaði þó hins vegar ekki í þeirri bók!“ segir Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is um þessa uppskrift sem átti að fara í matreiðslubókina sem hún og dóttir hennar, Elín Heiða, sendu frá sér árið 2021.

„Málið er hreinlega þannig að á einhverjum tímapunkti í Indesign yfirferð hef ég eytt opnunni þar sem þessa uppskrift var að finna! Þetta er klárlega ein besta uppskriftin að mati Elínar Heiðu og fengum við fyrst sjokk þegar við komumst að þessu en síðan vissi þetta auðvitað enginn nema við svo það var ekki annað hægt en að hlægja bara að þessu, enda búið að prenta nokkur þúsund eintök af bók með enga pylsubrauðsuppskrift,“ segir Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is um þessa uppskrift en stendur sannarlega fyrir sínu.

Pylsur í brauði

20 stykki

  • 120 g smjör
  • 350 ml nýmjólk
  • 1 poki þurrger (11,8 g)
  • 100 g sykur
  • 670 g hveiti
  • 1 tsk. salt
  • 1 pískað egg
  • 10 pylsur
  • Heinz Nass tómatsósa

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið í potti og hellið mjólkinni saman við þegar bráðið. Hitið saman við vægan hita þar til ylvolgt (hægt er að setja fingurinn ofan í án þess að finnast blandan heit).
  2. Hellið mjólkurblöndunni þá yfir í skál/könnu og hrærið þurrgerinu saman við, leyfið að standa á meðan annað er undirbúið.
  3. Setjið hveiti, salt og sykur í hrærivélarskálina, gott að nota krókinn til að hnoða.
  4. Hellið mjólkurblöndunni varlega saman við og hnoðið þar til slétt og fín deigkúla hefur myndast.
  5. Gott er að hafa deigið eins klístrað og þið komist upp með, án þess þó að það festist við alla fingur og fleti. Stundum þarf að bæta smá hveiti við en reynið að sleppa við það.
  6. Smyrjið stóra skál að innan með matarolíu, hnoðið deigið stutta stund í höndunum og veltið næst upp úr olíunni í skálinni, plastið skálina og leyfið að hefast í 1 klukkustund.
  7. Skerið pylsurnar til helminga svo úr verði 20 hlutar og hitið ofninn í 210°C.
  8. Skiptið deiginu næst niður í 20 einingar, rúllið hverjum hluta út í lengju sem er aðeins mjórri til endanna.
  9. Rúllið síðan deiglengju utan um hverja pylsu og raðið á bökunarplötu íklædda bökunarpappír.
  10. Penslið með pískuðu eggi og bakið í um 10-12 mínútur eða þar til brauðið fer að gyllast.
  11. Njótið með Heinz Nass tómatsósu.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert