Reese’s ís væntanlegur á markað

Það er eitthvað við Reese’s súkkulaði sem verður seint toppað og til marks um það fór ónefnd kona í fjórar mismunandi verslanir á laugardagskvöldið til að kaupa súkkulaðið vinsæla en blessunarlega var það til í fjórðu versluninni.

Nú hefur fyrirtækið sent frá sér tilkynningu um að ný frosin lína sé að koma á markað í lok janúar. Við erum ekki bara að tala um hefðbundinn ís heldur alls konar frosið góðgæti; sjö tegundir í heildina.

Þetta eru gleðitíðindi fyrir aðdáendur Reese’s hér á landi og vonandi kemur ísinn hingað sem fyrst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert