Næsta PRIME-sending væntanleg í fyrramálið

KSI og Paul Logan eru mennirnir á bak við drykkinn …
KSI og Paul Logan eru mennirnir á bak við drykkinn vinsæla.

Það ætlaði bókstaflega allt um koll að keyra í desember þegar fyrsta sendingin af íþróttadrykknum PRIME kom til landsins. Drykkurinn fór í sölu í völdum verslunum Krónunnar og N1 og seldist upp á augabragði.

Síðan þá hafa aðdáendur drykkjarins beðið með öndina í hálsinum en nú hefur verið tilkynnt að ný sending fer í sölu á morgun í Krónunni og á eftirtöldum N1 sölustöðum:

  • Borgarnes
  • Blönduós
  • Ólafsvík
  • Ísafjörður
  • Sauðárkrókur
  • Húsavík
  • Egilsstaðir
  • Höfn
  • Hveragerði
  • Keflavík
  • Ártúnshöfði
  • Hringbraut
  • Lækjargata
  • Borgartún

Það eru YouTube-stjörnurnar og áhugahnefaleikakapparinir Paul Logan og KSI sem eiga heiðurinn að drykknum sem nýtur gríðarlegra vinsælda um heim allan. 

Forstöðukona markaðsmála hjá N1, Þyrí Dröfn Konráðsdóttir, segir að viðtökurnar í desember hafi verið frábærar og það sé mikil tilhlökkun að geta boðið landsbyggðinni líka upp á drykkinn.

Síðast þegar drykkurinn kom til landsins þurfti að takmarka fjölda keyptra flaskna í tvær á mann og verður sami háttur hafður á núna. Ljóst er að þeir sem ætla að verða sér út um drykkinn góða þurfa að hafa sig alla við því drykkurinn fer formlega í sölu klukkan 9 í fyrramálið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert