Fiskibuff á 15 mínútum

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Hér kemur einfaldur og góður fiskréttur sem tekur aðeins um fimmtán mínútur að útbúa. Það þarf nefnilega alls ekki alltaf að vera flókið. Hér má einnig stytta sér leið með því að kaupa tilbúið hrásalat og tilbúna brúna sósu eða pakkasósu! Það tekur hins vegar enga stund að útbúa þessa brúnu sósu og muna bara að krydda og steikja forsoðnu kartöflunar nógu lengi svo þær fái stökka og bragðmikla húð," segir Berglind Hreiðars á Gotteri.is um þennan rétt sm ætti að hitta í mark á hverju heimili.

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Fiskibuff með hrásalati

Fyrir um 4-5 manns

Fiskibuff

  • 2 pk Gríms fiskibuff (12 stk)
  • 80 g smjör

Aðferð:

  1. Steikið fiskibuffin upp úr smjöri í nokkrar mínútur á hvorri hlið þar til þau brúnast aðeins og verða stökk að utan.
  2. Berið fram með smjörsteiktum kartöflum, sósu og hrásalati.

Hrásalat uppskrift

  • 130 g rauðkál ( ¼ haus)
  • 130 g hvítkál ( ¼ haus)
  • 130 g gulrætur (2-3 stykki)
  • 100 g majónes
  • 50 sýrður rjómi
  • 1 tsk. hvítvínsedik
  • 1 tsk. dijon sinnep
  • 2 tsk. sykur
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Skerið rauðkál og hvítkál í þunna strimla og rífið gulrætur með grófu rifjárni.
  2. Setjið grænmetið í skál og pískið önnur hráefni saman í annarri skál.
  3. Hellið næst majónesblöndunni yfir grænmetið og blandið saman, kælið fram að notkun.

Smjörsteiktar kartöflur

  • 1 kg forsoðnar kartöflur
  • 100 g smjör
  • Salt, pipar, hvítlauksduft, rósmarín

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið og látið vatnið renna af kartöflunum á meðan.
  2. Setjið kartöflurnar næst á pönnuna og steikið við meðalháan hita í að minnsta kosti 10 mínútur og kryddið eftir smekk.

Brún sósa uppskrift

  • 200 ml vatn
  • 200 ml rjómi
  • 2 msk. fljótandi kraftur (ég notaði nauta)
  • Maizena sósujafnari – um 3 msk. (20 g)
  • 1 msk. púðursykur
  • Salt og pipar
  • Sósulitur

Aðferð:

  1. Setjið vatn, rjóma og kraft í pott og náið upp suðunni.
  2. Lækkið þá hitann og þykkið með sósujafnara.
  3. Bætið sykri saman við og kryddið eftir smekk.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert