Sigurjón Bragi keppir í Bocuse d’Or

Það er komið að virtustu matreiðslukeppni heims: Bocuse d’Or en keppni hefst formlega á morgun, sunudaginn 22. janúar og stendur í tvo daga.

Keppnin fer fram í Lyon í Frakklandi og það er Sigurjón Bragi Geirsson sem keppir fyrir hönd Íslands. Í keppninni etja fulltrúar 24 þjóða kappi en fyrst þarf að fara í gegnum forkeppni í sinni heimsálfu til að öðlast keppnisrétt.

Sigurjón Bragi sigraði keppnina um Kokk ársins árið 2019 og náði 5 sæti í undandkeppni Bocuse d’Or sem haldin var í Búdapest í október. Undirbúningur hefur staðið yfir mánuðum saman en þjálfari Sigurjóns Braga er Sigurður Laufal sem keppni fyrir Íslands hönd í keppninni árið 2013 og 2021. Aðstoðarmaður Sigurjóns Braga er Guðmundur Bender.

Sigurjón Bragi er fjórði keppandinn inn í eldhúsið á mándudaginn og hefur keppni klukkan 08:52 að staðartíma. Þarf hann að reiða fram þrjá rétti á disk sem verða allir að innihalda grasker og síðan fiskrétt sem þarf að innihalda skötusel, hörpu- og bláskel.

Réttirnir þrír verða bornir á borð fyrir dómnefndina kl. 13:39 og fiskrétturinn á tima kl. 14:14 að íslenskum tíma.

Hvert þátttökuland á fulltrúa í dómarateymi Bocuse d’Or og mun Friðgeir Eiríksson dæma fyrir hönd Bocuse d´Or akademíunnar á Íslandi. Seinni part mánudags munu úrslitin liggja fyrir. Bocuse d’Or akademían á Íslandi er hópur fyrrverandi keppenda sem heldur utan um þátttöku Íslands í keppninni.

Góður árangur íslenskra keppenda

Keppnin Bocuse d’Or hefur verið haldin síðan 1987 en fyrsti íslenski keppandinn tók þátt árið 1999. Það var Sturla Birgisson og náði hann fimmta sæti. Síðan þá hafa Íslendingar ávallt verið í tíu efstu sætunum en bestum árangri náði Hákon Már Örvarsson árið 2001 og Viktor Örn Andrésson árið 2017 náðu þeir báðir í bronsverðlaun.

Fjöldi Íslendinga mun fylgja Sigurði til Lyon og hvetja hann til dáða! Hægt verður að fylgjast með keppninni á vefsíðu hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert