Hakk og spagetti á heimsmælikvarða

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

„Ég held að hakk & spaghetti sé með klassísku heimilisréttum íslendinga. Það er alla veganna go to rétturinn hjá Gulla þegar hann eldar. Skiljanlega, börnin borða vel af þessu, rétturinn er einfaldur að elda og bragðast oftast vel,“ segir Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir á Döðlur & smjör um þessa frábæru útgáfu af klassískum rétti.

„Við ætlum ekkert að breyta of mikið út af laginu við klassíkina en ég er búin að komast að því að bæta einhverju rjómakenndu í rétti er alltaf viðbót af hinu góða! Ef þið hafið ekki smakkað rjómaostinn með karamellíseruðum lauk þá er kominn tími til, hann fær mína toppeinkunn og á svo oft vel við. Sætur, mildur og virkilega bragðgóður.“

Rjómalagað hakk & pasta – fyrir fjóra-

  • 2 msk. olía
  • ½ laukur
  • 3 hvítlauksrif
  • 500 g hakk
  • 1 tsk. sriracha sósa (má sleppa)
  • 2 tsk. soja sósa
  • 2 tsk. ítalsk krydd
  • 200 ml vatn
  • 1 teningur nautakraftur
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 1 msk. tómatpúrra
  • 4 msk. rjómaostur með karamellíseruðum lauk
  • salt & pipar
  • 200 g penne pasta

Aðferð:

  1. Setjið olíu á pönnu og skerið laukinn smátt niður og bætið út á pönnuna og steikið í 2-3 mín. Takið utan af hvítlauknum og saxið niður eða notið hvítlaukspressu. Steikið með lauknum í augnablik. Bætið þá hakkinu út á pönnuna og steikið þangað til að hakkið er orðið brúnað.
  2. Bætið þá restinni af hráefnunum saman við og stillið á miðlungshita, kryddið með salt og pipar eftir smekk. Leyfið að eldast meðan pastað er soðið.
  3. Setjið vatn í pott og leyfið suðunni að koma upp. Bætið pastanu út í og sjóðið þangað til að það er fulleldað.
  4. Hellið vatninu af pastanu og blandið saman við kjötið og sósuna.
  5. Berið fram með t.d. parmesan osti, hvítlauksbrauði og fersku salati.
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert