Snjallasti morgunverður síðari ára

Ljósmynd/Linda Ben

„Ef þú ert að leita þér að einhverju skemmtilegu til að prófa til dæmis í morgunmat, hádeigismat eða hvenær sem er þá mæli ég með að prófa þessa gulrótaköku-hafraböku,“ segir Linda Ben um þessaða sniðugu böku úr hennar smiðju.

„Hafrabaka er bakaður hafragrautur eins og nafnið gefur til kynna. Það er rosalega einfalt að útbúa hana og fljótlegt. Áferðin minnir á köku og bragðast bakan alveg dásamlega, eins og gulrótarkaka.“

Gulrótaköku-hafrabaka

  • 200 g gróft haframjöl
  • 1 tsk kanill
  • 1/2 tsk engifer krydd
  • 2 msk hörfræ
  • 1/2 tsk salt
  • 200 g grísk jógúrt með karamellu og perum frá Örnu Mjólkurvörum + meira til að bera fram með bökunni.
  • 2 egg
  • 2 1/2 dl mjólk frá Örnu Mjólkurvörum
  • 2-3 msk hlynsíróp
  • 50 g kókosolía (brædd)
  • 60 g pekanhnetur
  • 25 g kókosmjöl
  • 2 gulrætur
  • 1 dl rúsínur (má sleppa)
  • Fersk bláber

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Blandið saman haframjöli, kanil, engiferi, hörfræjum og salti.
  3. Í aðra skál blandið saman grísku jógúrti, eggjum, mjólk, hlynsírópi og kókosolíu. Blandið því saman við þurrefnablönduna, hrærið þar til samlagað.
  4. Rífið gulræturnar niður með rifjárni og blandið þeim út í deigið ásamt söxuðum pekanhnetum og rúsínum.
  5. Smyrjið form sem er 24 cm í þvermál (eða ílíka stórt) með kókosolíu. Setjið deigið í formið og leyfið því að taka sig í 5 mín áður en þið setjið inn í ofn. Bakið í 25-30 mín, takið út úr ofninum og leyfið bökunni að hvíla í 10 mín áður en það er skorið í hana.
  6. Berið fram með grísku jógúrti og bláberjum.
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert