Svona er best að geyma egg

Brún og hvít egg - bæði betri.
Brún og hvít egg - bæði betri. mbl.is/Getty images

Hvar og hvernig áttu nákvæmlega að geyma eggin þín, það virðist vera ein af stóru ósvöruðu spurningum lífsins - eða hvað?

Okkkur heyrist sem heimurinn skiptist í tvennt er svara á þessari spurningu. Því í Bretlandi finnur þú eggin í hillum stórmarkaða, oftast hjá bökunarvörunum. Á meðan hinum megin við Atlantshafið og í Bandaríkjunum, þá eru egg geymd í kæli.

Kokkur að nafni James Martin hefur kastað orði inn umræðuna - en hann vill meina að við ættum aldrei að geyma egg inn í ísskáp. Því vegna áferðarinnar á skurninum, þá draga þau allt umfram bragð úr kælinum til sín.

Eggjasérfræðingar eru þó á öðru máli, því þeir vilja meina að best sé að geyma egg í kæli til að viðhalda jöfnu hitastigi - þannig haldast eggin ferskari. Það má einnig frysta egg, þá ber þó að slá egginu út áður en þú setur það í frysti - því ekki er ráðlagt að frysta eggjaskurninn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert