Feel Iceland vekur heimsathygli

Hrönn Margrét Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Feel Iceland.
Hrönn Margrét Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Feel Iceland.

Íslenski fyrirtækið Feel Iceland vakti mikla athygli á hinni virtu ráðstefnu Alþjóðlegu efnahagsstofnunarinnar sem fram fór í Davos í Sviss á dögunum. Þar var samankomið helsta áhrifafólk veraldar á sviðum viðskipta og stjórnmála ásamt fræðimönnum og ræða félagsleg og efnahagsleg vandamál heimsins.

Eitt af málefnum ráðstefnunnar í ár var sjálfbærni og framtíðaröryggi í matvælaframleiðslu. Í þeirri umræðu var fjallað um framtíð próteina en áhyggjur hafa vaknað um ósjálfbærni og óumhverfisvæna framleiðslu á próteinum í heiminum í dag. Á ráðstefnunni var einnig horft til framtíðar og hvort nóg sé af próteinum til að fæða alla heimsbyggðina.

Í þessu samhengi kynntu starfsmenn World Economic Forum sér þá nýsköpun sem á sér stað í heiminum í próteinvörum sem framleiddar eru með sjálfbærni að leiðarljósi.

Starfsfólk ráðstefnunnar hafði samband við Hrönn Margréti Magnúsdóttur framkvæmdastjóra Feel Iceland en það vakti athygli að félagið framleiðir kollagen prótein úr íslensku fiskroði sem áður fyrr var hent.Vakti einnig athygli að markaðsleiðandi fyrirtæki á Íslandi væri að vinna með nýsköpunarfyrirtæki en Ölgerðin þróaði drykkinn Collab í samstarfi með Feel Iceland en eitt af aðalhráefnunum er kollagen prótein.

„Það sem vakti athygli hjá World Economic Forum er sú nýsköpun sem hefur átt sér stað þar sem við notum áður vannýtt hráefni til þess að gera hágæða kollagen prótein. Einnig vakti athygli samstarf Feel Iceland og Ölgerðarinnar sem leiddi af sér einn vinsælasta drykk Íslands þar sem eitt aðalinnihaldsefnið er unnið úr íslensku fiskroði. Það hafa komið margar góðar hugmyndir um betri nýtingu og sjálfbærari matvörur en það er ekki sjálfgefið að slíkar vörur njóti jafnmikilla vinsælda og raun ber vitni með Collab. Það þykir merkilegt og vildi World Economic Forum vekja athygli á því á ráðstefnunni,” segir Hrönn Margrét Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Feel Iceland.

Á ráðstefnunni var kynntur framtíðardiskur próteins (e. Future plate of protein) og urðu fjórar vörur fyrir valinu. Ásamt Collab var boðið upp á hrökkbrauðið, Havsnacken, unnið úr þara frá sænska fyrirtækinu Nordic SeaFarm, ostur unninn úr gerjuðum linsu- og kjúklingabaunum frá sænska fyrirtækinu Stockeld Dreamery og að lokum var boðið upp á hamborgara unninn úr skordýrapróteini sem er framleiddur af franska fyrirtækinu Ÿnsect.

Gestir ráðstefnunnar í ár voru meðal annars 52 þjóðhöfðingjar og ríkisstjórnarleiðtogar sem mættu við hlið 56 fjármálaráðherra, 19 seðlabankastjóra, 30 viðskiptaráðherra og 35 utanríkisráðherra á ráðstefnuna. Forstöðumenn Sameinuðu þjóðanna,  Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar voru meðal 39 leiðtoga alþjóðlegra stofnana ásamt fjölda annarra gesta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert