Fjölskyldurrétturinn sem allir fíla

Ljósmynd/Thelma Þorbergs

Hver elskar ekki mexíkóskan mat sem tekur innan við 30 mínútur að útbúa? Mexíkóskar tortillur passa við mörg tilefni, bæði í saumaklúbbinn, afmæli eða í fljótlegan og léttan kvöldmat. Tortillakökurnar eru stökkar sem gerir þær enn þá betri og gott er að bera þær fram með avovadosósu, guacamole, auka salsasósu og jafnvel nachos flögum.

Það er engin önnur en Thelma Þorbergs sem á heiðurinn að þessari dásamlegu uppskrift.

Mexíkóskar tortillur með avocadosósu

  • 1 tsk. ólífuolía
  • 1⁄2 rauðlaukur
  • 1⁄2 laukur
  • 3 hvítlauksgeirar
  • 210 g maís (hálf dós maískorn)
  • 2 kjúklingabringur, eldaðar og rifnar niður
  • 230 g salsasósa
  • 1 dós sýrður rjómi 10% frá Gott í matinn
  • 250 g Mexíkósk ostablanda frá Gott í matinn
  • 10-12 tortillur

Avocadosósa

  • 2 avocado
  • 1 dós sýrður rjómi 10% frá Gott í matinn
  • 1 handfylli af ferskum kóríander
  • 1 bréf guacamole dip mix
  • safi úr einni límónu

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180 gráður og setjið bökunarpappír á ofnplötu.
  2. Setjið olíu á pönnu og hitið við meðalháan hita.
  3. Skerið niður lauk og hvítlauk og steikið ásamt baunum þar til laukurinn verður glær.
  4. Mjög fljótlegt er að nota tilbúinn kjúkling, nýta bringurnar af kjúklingum og rífa niður og setja á pönnuna. Ef eldaður kjúklingur er ekki til taks ekki eru tvær bringur steiktar eða grillaðar og rifnar niður og settar út á pönnuna.
  5. Setjið því næst salsasósu og sýrðan rjóma á pönnuna og blandið öllu vel saman.
  6. Takið pönnuna af hitanum og blandið ostinum saman við og hrærið vel saman.
  7. Fyllið hverja tortillu fyrir sig með kjúklingablöndu, vefjið þeim upp og setjið á ofnplötuna.
  8. Bræðið smjör og penslið því yfir hverja tortillu fyrir sig og eldið í rúmar 15 mínútur eða þar til vefjurnar eru orðnar gylltar að lit.
  9. Tortillakökurnar eiga að vera stökkar svo gott er að hafa þær aðeins lengur en venjulega til að fá stökka áferð.
  10. Á meðan vefjurnar eru í ofnum er gott að búa til sósuna.
  11. Setjið öll innihaldsefni í matvinnsluvél og blandið saman þar til sósan er orðin slétt og fín.
  12. Berið réttinn fram með avacadosósu, ferskum kóríander og rauðlauk.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert