Svakalegt súrdeigsbrauð Berglindar

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Það er fátt sem toppar gott súrdeigsbrauð og hér er Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is búin að galdara fram álegg sem tekur brauðið upp á næsta stig.

Súrdeigsbrauð með sveppum og kotasælu

6 litlar brauðsneiðar (fyrir 2-3 manns)

  • 6 sneiðar af súrdeigsbrauði (snittubrauði)
  • 200 g kotasæla (ein lítil dós)
  • 100 g kastaníusveppir
  • 150 g kjúklingabaunir
  • Ólífuolía til steikingar
  • Salt, pipar, hvítlauksduft, chilliduft
  • Kóríander

Aðferð:

  1. Skáskerið 6 sneiðar úr brauðinu og steikið upp úr ólífuolíu, leggið til hliðar.
  2. Skerið næst sveppina í sneiðar og steikið upp úr ólífuolíu, kryddið eftir smekk.
  3. Á meðan sveppirnir steikjast má setja kotasælu á hverja brauðsneið og síðan skipta sveppunum niður ofan á kotasæluna.
  4. Steikið að lokum kjúklingabaunirnar og kryddið eftir smekk, mér fannst gott að setja vel af chillidufti. Ef það kemur mikill safi á pönnuna af baununum er gott að hella honum af áður en þið kryddið endanlega til að þær nái aðeins að steikjast og fá stökka húð.
  5. Toppið með söxuðum kóríander.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert