Tiramisu-bollurnar sem toppa allt!

Ljósmynd/Linda Ben

„Hér höfum við dásamlega góðar vatnsdeigsbollur fylltar með klassíska eftirréttinum tiramisu! Fullkomnar með ljúffengum kaffibolla,“ segir Linda Ben um þessar bollur sem hún á alfarið heiðurinn af.

„Fyllingin er útbúin að svipaðan hátt og þegar maður gerir ostakökur, þ.e. maður hrærir flórsykur saman við mascarponeostinn sem maður hrærir svo saman við þeyttan rjóma. Engin hrá egg hér. Svo drekkir maður lady fingers-kexkökunum í kaffi. Maður ræður svo hvort maður sker kexkökurnar niður og blandar þeim saman við rjómann eða setur þær sér á hverja bollu fyrir sig. Það gæti verið hentugra að setja kaffidrekkt kexið á hverja bollu fyrir sig ef einhvern langar ekki í bollu með kaffi. Þá setur maður fyllingu í bæði botninn og toppinn á bollunni og kaffikexið á milli, lokar svo bollunni og toppar með bræddu súkkulaði.“

Tiramisu-vatnsdeigsbollur

  • vatnsdeigsbollur
  • 400 ml rjómi
  • 150 g mascarponeostur
  • 200 g flórsykur
  • 1 tsk vanilludropar
  • u.þ.b. 10 stk lady fingers-kexkökur
  • 1 bolli sterkt kaffi
  • 200 g suðusúkkulaði
  • 100 ml rjómi

Aðferð:

  1. Bakið vatnsdeigsbollurnar samkvæmt uppskrift.
  2. Þeytið rjómann.
  3. Blandið saman flórsykri og mascarponeosti. Bætið vanilludropunum út í. Blandið þeytta rjómanum saman við ostablönduna.
  4. Setjið lady fingers-kexkökur á bakka með smá brún. Hellið kaffinu yfir kexkökurnar og leyfið þeim að taka í sig kaffið.
  5. Skerið kexkökurnar í minni bita og bætið þeim ofur varlega saman við rjómablönduna, blandið saman mjúklega með sleikju (við viljum fara rosa mjúklega svo við kreistum ekki kaffið í kexinu).
  6. Skerið bollurnar í helminga og fyllið þær með rjómafyllingunni.
  7. Setjið rjóma í pott og hitið að suðu.
  8. Brjótið suðusúkkulaðið í skál og hellið rjómanum yfir súkkulaðið, hrærið þar til súkkulaðið hefur bráðnað og samlagast rjómanum.
  9. Setjið súkkulaði ofan á hverja bollu.
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert