Brönsinn sem þú verður að prófa um helgina

Ljósmynd/María Gomez

Hér gefur að líta dýrindi uppskrift úr smiðju Maríu Gomez á Paz.is. Hún smakkaði sambærilegan rétt síðasta sumar í Toronto í Kanada og leikur hann hér eftir fyrir lesendur.

Rétturinn samanstendur af tveimur spæleggjum ofan á focacciabrauði með fersku salati en María mælir heilshugar með að þið prófið þennan skemmtilega rétt. Hann heitir Farmer's Breakfast og nýtur mikilla vinsælda á veitingastaðnum þar sem María gæddi sér á honum með bestu lyst.

Bændadögurður, spælegg á focacciabrauði með salati og kryddjurtum

Focaccia-brauð

  • 200 ml volgt vatn
  • 1 msk. hunang
  • 1 msk. þurrger
  • 1/2 tsk. fínt salt
  • 350 g hveiti
  • 2 msk. ólífuolía

Kryddolía á brauðið

  • 1/2 dl ólífuolía
  • 1 msk. Organic Liquid-hvítlaukur
  • klípa af grófu salti
  • þurrrkuð steinselja

Salat

  • Salatblanda (eða annað kál)
  • 7-8 stk. kirsuberjatómatar eða pikkolótómatar
  • 10 stk. vínber
  • 10 svartar ólífur
  • smátt skorinn rauðlaukur
  • fetaostskubbur eða fetaostur í olíu
  • 1/2 avókadó
  • 3 msk. ólífuolía
  • 1 msk. Organic Liquid-basil
  • salt

Annað

  • 4 stk. egg
  • valfrjálst að hafa Organic Liquid-chili
  • salt
  • pipar

Focacciabrauð

  1. Setjið vatn, hunang og ger saman í litla skál og látið standa í fimm mínútur eða þar til kemur eins og þykk leðja ofan á.
  2. Setjið svo hveiti og salt saman í hrærivélarskál og hrærið saman salt og hveiti.
  3. Kveikið svo á hrærivélinni með krókinn á og stillið á lítinn hraða og hellið gerblöndunni hægt og rólega saman við.
  4. Hnoðið þar til deigið fer að bindast saman og hellið þá olíunni út á og hnoðið í eins og fimm mínútur eða þar til orðið að fallegri kúlu.
  5. Látið hefast í 1 klst. og hrærið í kryddolíuna á meðan með því að setja saman í litla skál ólífuolíu, Organic Liquid-hvítlauk, salt og þurrkaða steinselju og leggið svo til hliðar.

Salat

  1. Takið allt sem á að fara í salatið og skerið það mjög smátt, blandið saman í skál.
  2. Myljið fetaostakubbinn út á og hrærið svo saman dressinguna eða 3 msk. ólífuolíu, 1 msk. Organic Liquid-basil og klípu af salti og geymið til hliðar.

Bakstur og samsetning

  1. Þegar brauðið hefur hefast takið það þá úr skálinni og skiptið í tvennt.
  2. Gerið kúlu úr hvorum helmingi og byrjið að fletja kúluna út með því að ýta á hana með flötum lófanum og teygja til hliðar og langsum (ekki nota kökukefli heldur teygið það). Ýtið á miðjuna með fingrunum þar til það er orðið eins og löng pítsa og leyfið því svo að hefast aftur undir stykki í 10-15 mínútur.
  3. Penslið þá deigið vel með hvítlauksolíunni og saltið smá með grófu salti.
  4. Bakið við 220°C blástur í 15 mín.
  5. Þegar brauðið er alveg að verða til er gott að spæla eggin upp úr olíu og salta og pipra.
  6. Þegar brauðið kemur heitt úr ofninum, setjið þá tvö spælegg hvort á sitt brauðið og svo salat með til hliðanna.
  7. Dreifið basilolíu yfir salatið og ef ykkur finnst chili gott þá fannst mér geggjað að setja nokkra dropa af Organic Liquid-chili yfir eggin.
  8. Berið heitt fram og njótið.
Ljósmynd/María Gomez
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert