Kvöldverðurinn sem tekur korter að búa til

Ljósmynd/Linda Ben

„Hér höfum við svakalega góð nautatacos sem eru með sýrðum rjóma, mangósalsa, fersku kóríander og hot sauce,“ segir Linda Ben um þessa uppskrift og við tökum heilshugar undir enda blandast hér saman frábærar bragðtegundir sem engan ættu að svíkja.

„Þetta er afar fljótlegur og einfaldur réttur, en það tekur um það bil 15 mín. að elda hann. Maður byrjar á því að útbúa mangósalsað með því að skera niður mangó, rauðlauk, papriku og kóríander, kreistir svo límónusafa yfir. Nautaþynnurnar frá SS eru algjör snilld í svona rétti en það eru hágæða nautakjöt sem er búið að skera niður í litla strimla svo maður einfaldlega smellir þeim á pönnuna, kryddar til og steikir.“

„Mér finnst alltaf gott að steikja vefjurnar fyrst aðeins á pönnu til að hita þær og gera þær örlítið stökkari. Maður setur svo sýrðan rjóma í botninn á vefjunum og setur svo nautakjötið og mangósalsað yfir. Ef þú fílar sterkan mat þá mæli ég mikið með að setja svolítið af hot sauce yfir. Svo er alltaf gott að bæta við örlítið meira af kóríander og límónusafa yfir.“

Nautatacos með mangósalsa

  • 400 g Nautaþynnur frá SS
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • 1/2 tsk. cumin
  • 1/4 tsk. chilíkrydd
  • 1/4 tsk. cayennepipar
  • Salt og pipar
  • 3 hvítlauksrif
  • Mangósalsa (uppskrift hér fyrir neðan)
  • Sýrður rjómi
  • Ferskt kóríander
  • Litlar maísvefjur
  • Cholula hot sauce (má sleppa ef þið viljið ekki hafa tacóið sterkt)

Mangósalsa

  • 1 mangó
  • 1/2 rauðlaukur
  • 1 rauð paprika
  • 1 lúka ferskt kóríander
  • Safi úr 1 lime

Aðferð:

  1. Byrjið á því að útbúa mangósalsað með því að skera mangóið í litla bita, skerið einnig rauðlaukinn smátt niður og paprikuna. Skerið kóríanderið einnig smátt niður, blandið öllu saman í skál og kreistið límónusafa yfir.
  2. Kryddið nautaþynnurnar með paprikukryddi, cumin, chilí, cayenne, salti og pipar. Steikið á pönnu þar til nánast eldaðar í gegn, rífið þá hvítlauksrifin yfir kjötið á pönnunni og steikið þar til kjötið er tilbúið.
  3. Steikið maísvefjurnar létt á pönnu til að hita þær.
  4. Setjið sýrðan rjóma í botninn, nautakjötið og mangósalsað, og dreifið fersku kóríander og hot sauce yfir.
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert