Brauðrétturinn sem Bergþór elskar

Jóna Lára tínir jurtir í náttúrinni og þurrkar. Úr þessu …
Jóna Lára tínir jurtir í náttúrinni og þurrkar. Úr þessu gerir hún hina og þessa heilsubætandi drykki. Hún bauð upp á brenninetludrykk, vallhumal-brenninetlu-seyði og hamp-seyði. Allt svo hressandi. Ljósmynd/Albert Eiríksson

Meistari Albert Eiríksson deildi á dögunum uppskrift að brauðrétt sem fenginn var frá Jónu Láru Sveinbjörnsdóttur. Svo góður var brauðrétturinn að maki Alberts, Bergþór Pálsson, gat vart á heilum sér tekið. 

„Ég fékk einn allra besta heita brauðrétt sem ég hef smakkað, þú verður að birta uppskriftina,” sagði Bergþór um heitan brauðrétt sem Jóna Lára Sveinbjörnsdóttir kom með í kvennakórspartí segir Albert á heimasíðunni sinni Albert Eldar.

„Heitir brauðréttir hafa verið með vinsælustu saumaklúbbsréttum um árabil, en galdurinn við þennan gætu verið ómissandi kasjúhneturnar. Þegar þær ristast gerast einhverjir töfrar. Alla vega er hann mjög ljúffengur. Eins og við var að búast tók Jóna Lára vel í að útbúa réttinn sem að grunni til er af síðunni ÓlöfHummus og er þar vegan.“

Heitur brauðréttur – einn sá allra besti

  • 7 brauðsneiðar
  • 5-6 sveppir, í sneiðum
  • 1 dós aspas
  • 7 msk. mæjónes
  • 1 lúka ferskt spínat
  • salt og pipar
  • 1 1/2 dl kasjúhnetur
  • Rifinn ostur

Aðferð:

  1. Skerið niður brauðsneiðar í litla teninga og dreifið í eldfast mót.
  2. Hellið aspasvökvanum jafnt yfir brauðið.
  3. Blandið saman mæjónesi, spínati, sveppunum og aspasinum í skál. Saltið og piprið.
  4. Dreifið osti yfir og kasjúhnetum
  5. Bakið í ofni á 160°C í rúmlega 20 mín.
Ljósmynd/Albert Eiríksson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert