Selena Gomez deilir uppáhalds partýréttinum sínum

Selena Gomez
Selena Gomez AFP

Fræga fólkið elskar líka hversdagslegan subbumat eins og sjá má í þessu myndbandi frá Vanity Fair þar sem Selena Gomez galdrar fram sínar uppáhalds partýveitingar.

Rétturinn er einfaldur en Gomez fullyrðir að hann slái alltaf í gegn – þó hann sé frekar ólystugur.

Við erum að tala um Ritz-kex, ost í brúsa og pepperóní. Úr þessu er búin til Ritz-loka og sett í ofn uns osturinn er bráðnaður.

Meðfylgjandi myndband segir meira en mörg orð...

Selena Gomez
Selena Gomez AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert