Besta pítsa sem Berglind hefur smakkað

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Þegar matargúrú mælir með uppskrift þá leggjum við hin við hlustir. Meistarakokkurinn og matarbloggarinn Berglind Hreiðars á Gotteri.is fer stórum orðum um þessa pístu sem hún mælir heilshugar með.

„Ostapizzur slá alltaf í gegn og eru góð tilbreyting frá klassískri pizzu. Hér er á ferðinni pizza með rjómaosti, 4 osta blöndu, mozzarellakúlum og karamellíseruðum lauk, nammi nammi, namm, mögulega eins sú besta pizza sem ég hef prófað!“

Ostaveisla

Uppskrift dugar fyrir 4 litlar (12 tommu) pizzur

Pizzadeig

  • 950 g hveiti
  • 600 ml volgt vatn
  • 1 þurrgersbréf (11,8g)
  • 4 msk. ólífuolía

Aðferð:

  1. Setjið þurrefnin í hrærivélarskál og festið krókinn á (þetta deig má einnig hnoða saman í höndunum en þá þarf að gera stóra holu í þurrefnahrúguna og blanda vatni og olíu saman við í nokkrum skömmtum).
  2. Blandið þurrefnunum saman og hellið vatni og ólífuolíu saman við og hnoðið í nokkrar mínútur.
  3. Penslið stóra skál með matarolíu, veltið deigkúlunni upp úr olíunni, plastið skálina og leyfið að hefast í um eina klukkustund.
  4. Skiptið niður í 4 hluta, setjið álegg á hvern botn og bakið við 220°C í um 13-15 mínútur.

Karamellíseraður laukur

  • 4 stórir laukar
  • 80 g smjör
  • 2 tsk. salt
  • 6 msk. sykur

Aðferð:

  1. Steikið laukinn við meðalháan hita upp úr smjörinu þar til hann mýkist.
  2. Saltið og sykrið og steikið áfram við lágan hita þar til laukurinn fer aðeins að brúnast og karamellíserast, slökkvið þá á hellunni og látið laukinn standa þar til hann fer á pizzuna.

Annað hráefni og samsetning

  • 400 g rjómaostur frá Gott í matinn (við stofuhita)
  • Oregano krydd
  • 1 ½ poki 4 osta blanda frá Gott í matinn
  • 1 ½ + 2 dósir Mozzarellaperlur frá Gott í matinn
  • Klettasalat (1 poki)
  • Furuhnetur
  • 12 sneiðar hráskinka
  • Smá sítrónusafi
  • Gróft salt
  • Góð ólífuolía
  • Balsamikgljái

Aðferð:

  1. Smyrjið rjómaosti yfir hvern botn og stráið vel af Oregano yfir.
  2. Skiptið næst lauknum á milli botnanna og dreifið vel úr.
  3. Stráið þá 4 osta blöndu yfir allt og um 20 mozzarellaperlum á hverja pizzu.
  4. Bakið við 220°C í um 15 mínútur og takið úr ofninum þegar kantarnir eru orðnir vel gylltir.
  5. Toppið með klettasalati, furuhnetum, hráskinku, sítrónusafa, ólífuolíu, balsamikgljáa og grófu salti.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert