Ostakakan sem allir ráða við

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Þessa ostaköku er einfalt að útbúa. Ef þið mynduð frekar vilja skipta henni niður í nokkur glös þá mætti líka alveg gera það. Hún er fersk og góð og var ekki lengi að klárast upp til agna svo það eru klárlega góð meðmæli fyrir þessa uppskrift. Höfundur uppskriftar er engin önnur en Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is og ef einhver kann réttu handtökin í ostakökugerð þá er það hún.

Ostakakan sem allir ráða við

Botn

  • 14 stk. Oreo kexkökur
  • 60 g brætt smjör

Fylling

  • 400 ml rjómi frá Gott í matinn, þeyttur
  • 300 g rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
  • 80 g flórsykur
  • 2 tsk. vanilludropar

Jarðarberjatoppur

  • 500 g jarðarber
  • 3 msk. jarðarberjasulta

Botn

  1. Setjið kexið í matvinnsluvél/blandara og tætið niður í duft.
  2. Setjið kexduftið í skál og blandið smjörinu saman við.
  3. Pressið í botninn á eldföstu móti eða fallegri skál og kælið á meðan þið útbúið fyllinguna.

Fylling

  1. Þeytið saman rjómaost, flórsykur og vanilludropa í nokkrar mínútur, skafið niður á milli.
  2. Blandið um 1/3 af þeytta rjómanum varlega saman við með sleif og síðan restinni af honum.
  3. Hellið fyllingunni yfir kexbotninn í mótinu, jafnið úr blöndunni og kælið í a.m.k. þrjár klukkustundir áður en þið setjið jarðarberjatoppinn yfir.

Jarðarberjatoppur

  1. Skerið jarðarberin niður og setjið í skál.
  2. Blandið sultunni varlega saman við með sleif og veltið berjunum upp úr henni þar til þau eru orðin gljáandi falleg.
  3. Hellið yfir ostakökuna og geymið í kæli fram að notkun.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert