Lúxus lambalæri með hunangsgljáa

Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt

Helgarmaturinn er handan við hornið og sjálfsagt margir sem ætla að bjóa upp á dýrindis lambalæri samkvæmt venju. Hér erum við með uppskrift þar sem notaður er hunangsgljái sem inniheldur jafnframt dijon-sinnep, ferskt rósmarín og timían-greinar. Í okkar huga er þetta blanda sem getur ekki klikkað og við hvetjum ykkur til að prófa. 

Ofnbakað úrbeinað lambalæri
  • 1,5 kg úrbeinað lambalæri
  • ½ dl olía
  • 1 ½ msk. hunang
  • 1 tsk. dijon-sinnep
  • 3 tímíangreinar, laufin tínd af
  • 3 ferskar rósmaríngreinar, nálar tíndar af og saxaðar
  • 1 msk. oregano
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • 2 tsk. salt
  • 1 ½ nýmalaður svartur pipar
  • 1 hvítlaukur, skorinn þvert í tvo hluta

Bakað rótargrænmeti og laukur 

  • 6 gulrætur, skrældar
  • 3 rauðlaukar, skornir til helminga
  • 1 sellerírót, skræld og skorin í grófa bita

Leiðbeiningar

Ofnbakað lambalæri

  1. Hitið ofn í 180°C. Blandið olíu, hunangi, sinnepi og kryddi saman í skál og smyrjið á lærið. Notið hendur og makið vel á allt lærið, ekki er verra ef lærið fær að marinerast í ísskáp í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt en þess þarf ekki.
  2. Setjið lærið í ofn og bakið í um það bil klukkustund. Ausið soðinu yfir nokkrum sinnum á meðan eldun stendur yfir. Takið lærið út og látið jafna sig á borði í 15 mínútur og hafið álpappír yfir á meðan.

Bakað rótargrænmeti og laukur

  1. Setjið í eldfast mót ásamt 100 g af smjöri, saltið og piprið og eldið í ofninum samhliða lærinu. Má líka hafa grænmetið í sömu ofnskúffu og lærið.
  2. Þegar lærið er tekið úr ofninum og hvílir á borðinu skal hækka hitann á grænmetinu í 200°C og elda í 15 mínútur til viðbótar eða meðan kjötið hvílir. 
  3. Berið fram með grænmetinu, bökuðum eða grilluðum kartöflum og góðri soðsósu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert