Innkalla Orkublöndu vegna aðskotahlutar

Ljósmynd/Aðsend

Nathan & Olsen, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað orkublöndu vegna aðskotahlutar sem fannst í pakkaðri vöru. 

Orkublandan er blanda af jarðhnetum, rúsínum, kasjúhnetum og möndlum í hýði og er seld í Krónunni. 

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni hjá Nathan & Olsen í Klettagörðum 19. 

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við: 

Vörumerki: Krónan

Vöruheiti: Orkublanda - blanda af jarðhnetum, rúsínum, kasjúhnetum og möndlum í hýði. 

Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 29.09.2023

Strikamerki: 5690595095663

Framleiðandi: Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík

Framleiðsluland: Ísland 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert