Leynitrixið á bak við hreint sturtugler

mbl.is/Colourbox

Hér bjóðum við upp á bestu leiðina til að þrífa sturtuglerið og hvernig best sé að viðhalda glerinu hreinu.

Svona þrífur þú sturtuglerið

  • Eimað hvítt edik
  • Vatn
  • Uppþvottalögur
  • Spreybrúsa
  • Svamp
  • Örtrefjaklút
  1. Setjið jafnt af ediki og vatni í spreybrúsa.
  2. Setjið 1 tsk. af uppþvottalögi saman við.
  3. Spreyjið blöndunni á glerið og látið standa í 15 mínútur.
  4. Notið örtrefjaklút til að nudda yfir, og þá jafnvel með svampinum séu blettirnir erfiðir.
  5. Skolið og þurrkið glerið hreint.

Svona heldur þú sturtuglerinu ávallt hreinu

  • Þurrkið alltaf vatnið á glerinu eftir hverja sturtuferð.
  • Notið sturtuhreinsi 1-2 í mánuði. Þess á milli má nota edikblönduna eftir þörfum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert